Eining - 01.01.1959, Blaðsíða 8

Eining - 01.01.1959, Blaðsíða 8
8 EIN ING í t i | • 1 Rilstjórn blaósióunnar: Islenzkir ungtemplarar Guðmundur Þórarinsson Cx J. og Einar Hannesson. Áramóft Einu sinni enn erum við stödd á tíma- mótum. Við áramót er það háttur margra, að líta um öxl og hugleiða, hvort gengið hefur verið til góðs, götuna fram eftir veg. En sú gata sem við ungtemplarar höfum gengið, er ekki löng, sambandið er ekki ársgamalt, stofnað sumardaginn fyrsta 24. apríl, þó raunar nokkrar ung- mennastúkur hafi áður hafið merkið og vísað veginn. Þó leiðin sé ekki löng, lýsa þó nokkrir kyndlar þá braut, sem farin hefur verið. Sumarstarfið var ágætt með skemmti- ferðum á fagra staði, til kynningar á landinu. Hið velheppnaða mót að Jaðri var skemmtilegt, auk þess sem það var kynning og kennsla á starfi ungtempl- ara. Með sumarstarfseminni voru tengd vináttu- og félagsbönd. Tómstunda- starfið, sem ungtemplarar hafa haft forystu um, hefur orðið mörgum til gagns og gleði og það langt út fyrir raðir þess félagsskapar, virðist það muni verða heilladrjúgt gæfuspor, sem ekki má vera tómlæti um. I ár eða 10. janúar er góðtemplara- reglan 75 ára á íslandi. Reglan hefur unniS þjóS vorri ómetanlegt gagn í anda siSgceSis og mannúSar, hún hefur bjarg- að fjölda fólks undan ógcefu áfengisins, hún hefur styrkt félags og brceörabönd og starfaS mikið að margs konar líknar- málum. Ungtemplarar óska Reglunni allra heilla í framtíðinni. Hið nýja ár á fyrst og fremst að vera okkur hvatningt til meiri starfa.—Hvar- vetna blasa verkefnin við og bíða áhuga fólks, er vilja lýsa bjötum blysum um byggðir landsins. Ungtemplarar vilja hafa merki sitt hreint og hátt, með því einu getur það orðið þjóðinni til blessunar. — Enginn ungur maður eða stúlka má loka augun- Grímudansleikur Islenzkir ungtemplarar efndu til grimudans- leiks í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík sunnu- daginn 28. desember s. 1. Samkoman tókst prýði- lega. Þarna mátti sjá marga skemmtilega og góða búninga. Verðlaun voru veitt fyrir beztu búningana og hlutu 1. verðlaun Hrefna Péturs- dóttir (úr Hrönn) og María Árelíusdóttir (úr Hálogalandi). Hrefna var búin sem Indiána- stúlka en María var sem bóndi. Hér á blaðsíð- unni sjáið þið mynd af sigurvegurunum og nokkrum öðrum félögum í gerfum, sem vöktu sérstaka athygli á grímudansleiknum. 3. Hringleikur 1 Ég úti gekk um aftan í yndisfögrum lund. :,: :,: Þá mætti ég ungri meyju á munaðsblíðri stund. :,: 2 :,: Hún hét mér trú og tryggðum og tók mér blítt í hönd. :,: :,: Við knýttum við knýttum vor kærleikstryggða bönd. :,: 3 :,: Og böndin sem við bundum þau leysir engin hönd. :,: :,: Við leiðið þitt lága þar leysast tryggðabönd. :,: Stúlkurnar mynda innri hring, piltar ytri. 1 lok fyrsta erindis staðnæmast stúlkurnar frammi fyrir þeim pilti, sem þær ætla að dansa við, hneygja sig og brosa. 1 byrjun annars erindis leggja þær báðar hendur á brjóst, en rétta hönd þeim pilti, sem þær ætla að dansa við á orðunum: „tók mér blítt i hönd“, Á orðunum „við knýttum" taka þau sam- an báðum höndum með mjúkum arm- sveiflum til hliðar. Á síðasta erindi er dansað, hvert par út af fyrir sig og erindið allt tvítekið. umfyrirþeirra ógæfu, er þjóð vor verður fyrir af nautn eiturlyfja. Þjóð vor er fámenn, ísland má ekki við að missa neinn góðan dreng eða stúlku í viðjar óhollra nautna. I raun og veru er það helg skylda allra góðra íslendinga að styðja það mál og þó fyrst og fremst forystumanna þjóðarinnar. Ungtemplarar vilja reisa við hið lága merki skemmtanalífsins. Þeir vilja skemmta sér á frjálsan og prúðmann- legan hátt og segja allri drykkjutízku stríð á hendur. Þeir vilja tengjast félags og vináttuböndum til heilla fyrir land sitt og þjóð. Heitasta ósk vor er að það takmark náist, við vonum að þetta ný- byrjaða ár, verði ár mikils starfs og margra sigra. Þér, æska, hlýtt nú heilsar þetta ár, horfðu björtum augum fram á veginn. Láttu rætast um þig íslands þrár þúauðgirlífþittfegurð, hug og megin. Því svo bezt munu verk til dáða drýgð, að dýrust hugsjón byggist ei á sandi. Að æskan starfi, trú og vonum vígð, varðar mestu um framtíð okkar landi. G. Þ. Kynningarboð Margar eru aðferðirnar við útbreiðslustarfið. Ein af þeim eru kynningarboðin. Þau eru fram- kvæmd þannig: Valin eru nokkur ungmenni (10—20), sem vitað er að ekki taka þátt í neinu félagsstarfi, og þeim boðið til kynningarboðs (kaffikvölds). Sérstaklega þjálfaðir félagar ræða þar við hópinn um ýmis konar félgags- starfsemi og hlusta jafnframt eftir áhugamálum ungmennanna eða reyna að vekja áhuga þeirra á einhverju hollu viðfangsefni. Síðar er þeim, sem þess óska, komið I samband við forustu- menn á þeim vettvangi, sem viðkomandi vill starfa á. 1 þessum kynningarboðum tekst að ná persónulegra sambandi við þá, sem þangað Grhnudansinn.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.