Eining - 01.01.1959, Side 16
16
ÞorvarOur Þorvarösson, prentsmiOjustjóri, —
Stórtemplar 1921—1923.
Sjötíu ogr fimm af hundraði alls mannkynsins
neytir ekki áfengis, en þessi drekkandj fjórði
hundraðshluti er að mestu leyti í löndum
kristinna manna. Lítil sæmd er það kirkju
hinna kristnu, og er varla von á góðu ef æðstu
mennl kirkjumála veita i veizlum áfenga drykki
bæði kennurum og prestum. Dugar þá slíkum
mönnum lítt að átelja drykkjusiði.
Einar H. Kvaran, rithöfundur og skáld — Stór-
templar 1923—1921).
t
EINING
Keflvíkingar gáfu
hið réffa fordæmi
Með miklum myndarbrag stóðu þeir
kraftar, sem verjast vilja vandræðum
og ómenningu, saman í Keflavík um það
að hafna opnun áfengisútsölu þar. Bind-
indishugsjónin á sterka og ágæta liðs-
menn í Keflavík. Málflutningur þeirra að
þessu sinni var hinn prýðilegasti og rök-
færslan örugg. Andstæðingar bind-
indisins eiga aldrei völ á neinum hald-
góðum rökum og málstaður þeirra er
vondur, og þess vegna óverjandi, þótt
hann sigri oft í krafti nautnasýki og
gróðahyggja. Annað hefur hann hvergi
sér til stuðnings.
Af 2149 kjósendum greiddu 1112
atkvæði. Sögðu 619 nei við opnun
áfengissölu í Keflavík, en 487 já. Hefði
áreiðanlega illa til tegizt, ef bindindis-
menn á staðnum og liðsmenn þeirra
hefðu ekki verið vel á verði.Þeir menn
sem stöðugt rægja templara og reyna
að telja þjóðinni trú um að starfsemi
þeirra sé gagnslaus, segja alltaf ósatt.
Bæði í Keflavík og Vestmannaeyjum
hefði nú verið opnaðar áfengissölur, ef
templarar hefðu ekki látið málið til sín
taka, en vitað er, hvaða áhrif opin
áfengisverzlun hefur á hverjum stað.
----ooOoo---
Það bjargaði
Fróðleiksþörf aldrei fékk ég satt,
því fór nú svona um ,,pundið“
en Guð gef mér hjarta hlýtt og glatt,
því hef ég gæfuna fundið.
Síráin
Oft í byljum velta verst
veldi heimsins stinn og há.
Stráin þola storminn bezt,
því stráin eru mjúk og lág.
P. S.
------ooOoo-----
Frumleg refsing
Lögreglan í Tyrklandi notar óvenjulega aðíerð
til þess að refsa þeim mönnum, er sekir gerast
um ölvun við akstur. Lögreglan setur hinn seka
upp í jeppabíl og ekur með hann út úr borg-
inni, 25 kílómetra út fyrir allt sem kallast geta
vegir eða samgönguleiðir, skilur manninn þar
eftir og veifar höndum til hans um ieið og
lögreglumennirnir aka heimleiðis. Hinn brot-
legi á ekki annars kostar en röita alla vega-
lengdina heim á leið.
Auglýst eftir vinnufólki
„kaupamaður óskast að Nesi, sem kann að
mjólka kýr og tvær vinnukonur."
SigurOur Jónsson, skólastjóri. —- Stórtemplar
1921—1929.
Sagt er, að þegar erkibiskupinn af Canter-
bury, Geoffrey Fisher, var ungur pestur hafi
hann gefið saman ung hjú í heilagt hjónaband.
Þegar lokið var athöfninni spurði brúðguminn,
hvað hann skuldaði.
„Ég set ekkert ákveðið upp,“ svaraði hinn
ungi klerkur, „gjaldið verður að fara eftir því,
hvers virði yður finnst athöfnin vera."
Þá sneri brúðguminn sér að brúðurinni og
sagði: „Elskan mín, þú hefur gert mig eigna-
lausan til lífstíðar."
Páll J. Ólafsson, tannlæknir. — Stórtemplar
1929—30.