Eining - 01.08.1967, Blaðsíða 2
2
E I N I N G
Ólnfur Þ. Kristjánsson.
maður Færeyja er æðsti maður eyjanna
ásamt ríkisumboðsmanninum, sem svo
er nefndur og skipaður af ríkisstjórn
Danmerkur, en í landsstjórn Færeyja
eru þrír menn, lögmaðurinn og tveir
aðrir.
Að lokinni ræðu lögmanns lék horna-
flokkurinn. Síðan flutti námskeiðsstjór-
inn, Karl Wennberg, ræðu, en hann hef-
ur stjórnað þessum námskeiðum, og
kannast margir Góðtemplarar hér á
landi við logandi áhuga hans og ódræp-
an dugnað. — Síðast var sunginn templ-
arasöngur.
Erindi.
Erindi á námskeiðinu voru tvenns
konar, annars vegar um færeysk mál-
efni og hins vegar um bindindismál.
Þar flutti Pétur M. Rasmussen, prestur
í Þórshöfn, erindi um sögu Færeyja, en
Káre Holt, rithöfundur úr Noregi, tal-
aði um Sverri konung, en hann ólst upp
í Færeyjum, eins og kunnugt er, en
Káre Holt hefur í mörg ár unnið að bók
um Sverri. Þá talaði Hans Holm, kenn-
ari, um fuglana í Færeyjum, en Mogens
Wahl, ríkisumboðsmaður um Færeyjar
og Danmörku. Loks flutti William
Heinesen, rithöfundur, erindi um fær-
eyska menningu. Um bindindismál voru
flutt þrjú erindi. Svend Skyum-Nielsen,
áfengisvarnaráðunautur Dana, flutti er-
indi, sem hann nefndi: Hvað vitum við
um ástandið í áfengismálum á Norður-
löndum? Stórtemplar Svía, Olov Bur-
man, talaði um áfengissj úklinga og hvað
fyrir þá væri unnt að gera og hvað þeir
gætu gert sjálfir, en Arvid J. Johnsen,
bindindisráðunautur úr Noregi, talaði
um þjálfun æskulýðsleiðtoga. Því mið-
ur áttum við Islendingar þess ekki kost
að hlýða á öll erindin, því að svo stóð á
ferðum, að við urðum að halda heim-
leiðis 2. ágúst, en sum af þessum er-
indum að minnsta kosti voru hin merk-
ustu. Hins vegar var nokkuð misjafnt,
hvernig námskeiðsgestir nutu þeirra, og
kom mér stundum í hug það, sem Ras-
mus Ankjærö, stórtemplar Dana, sagði,
en hann stjórnaði þarna tungumála-
námskeiði, sem mest var fólgið í saman-
burði á ýmsu í dönsku og sænsku, en
hann komst svo að orði, að þegar menn
flyttu erindi, ekki sízt ef áheyrendur
væru óvanir málinu, sem talað væri,
yrðu þeir að tala bæði með tungu og
gómi, en mér fannst satt að segja, að
sumir fyrirlesaranna gerðu hvorugt.
Spurningatími var að loknu hverju er-
indi.
Ólafsvakan.
Ólafsvakan, hin mikla þjóðhátíð Fær-
eyinga féll inn í námskeiðið, en aðaldag-
ur þeirrar hátíðar er 29. júlí. Streymir
mikill fjöldi manna til Þórshafnar til
að vera þar á hátíðinni, bæði innlendra
og útlendra. Hér verður ekkert um há-
tíðina sjálfa sagt, því að skrifað hefur
verið um hana í önnur blöð og um hana
rætt í útvarpinu.
Tvö atriði úr dagskrá námskeiðsins
voru felld inn í dagskrá hátíðahalda-
anna. Fóru bæði fram sunnudaginn 30.
júlí. Þá messaði séra Steen Christian-
sen, prófastur frá Jótlandi, en hann er
kunnur af bindindisstarfsemi sinni,
hefur meðal annars verið ritstjóri Af-
holdsbladet og Dansk Good-Templar.
Færeyjabiskup þjónaði fyrir altari.
Síðdegis var bindindissamkoma. Átti
hún að vera undir beru lofti, á Skansin-
um, sem svo er nefndur, en var færð inn
í hátíðasal barnaskólans vegna rigning-
ar. Er það stórfallegur salur, skreyttur
á veggjum með málverkum úr Sigurðar
kvæði Fáfnisbana. Þar lék hornaflokkur
Hjálpræðishersins og 6 stuttar ræður
voru fluttar. Þessir voru ræðumenn:
Gunnar Jensen, stórvaratemplar
N. I. 0. G. T. í Danmörku, Ólafur Þ.
Kristjánsson, stórtemplar Islands,
Uvdlorianguak Kristiansen, blaðamað-
ur frá Grænlandi, Rasmus Ankjærö,
stórtemplar I.O.G.T. í Danmörku, Arvid
Johnsen, bindindisráðunautur úr Nor-
egi og Olov Burman, stórtemplar Syía.
Stórtemplar Færeyja stjórnaðisamkom-
unni.
Námskeiðsmönnum gafst kostur á að
vera við ýmis önnur atriði hátíðahald-
Karl Wennberg.
anna. Notuðu menn sér það á ýmsa
vegu. Margir voru viðstaddii' skrúð-
göngu á föstudaginn og setningu Ólafs-
vökunnar, en þar flutti P. M. Dam, lög-
maður, ræðu. Eins horfðu ýmsir á
skrúðgöngu lögþingsmanna og helztu
embættismanna eyjanna úr þinghúsinu
í kirkju á Ólafsvökudag og voru við-
staddir guðsþjónustu, en þann dag var
lögþingið sett.
Ýmsar samkomur.
Nóg var jafnan að gera á kvöldin.
Stundum voru haldnar samkomur í
menntaskólanum. Á einni slíkri sam-
komu var sýnd íslenzk kvikmynd, yfir-
litsmynd, er Fræðslumyndasafn ríkisins
léði okkur. Jafnframt sungu þrjár ung-
ar stúlkur úr Hafnarfirði nokkur ís-
lenzk lög og léku undir á gítar. Var
gerður að þessu góður rómur.
Eitt kvöldið var samkoma í Þórshöfn
í boði Norræna félagsins. Somkomu-
stjóri var Maríus Johannesen, skóla-
stjóri, sem hér var á ferð fyrir skömmu
sem fararstjóri Færeyinga á norrænt
æskulýðsmót. Á þessari samkomu flutti
Poul Eide, kennari, erindi um færeyska
dansa og danskvæði með sýnishomum,
einkar lifandi. Á eftir voru færeyskir
hringdansar stignir og sungið undir, og
tóku margir námskeiðsgestir þátt í
dansinum.
Annað kvöld sóttu menn stúkufund.
Þar flutti Sigurður Gunnarsson, stór-
gæzlumaður unglingastarfs, kveðju frá
Reglunni á íslandi og mæltist vel og
rösklega.
Enn var það eitt kvöld, að námskeiðs-
gestum var boðið heim til færeyskra
bindindismanna. Var nokkur metingur
Framhald á 4. bls.