Eining - 01.08.1967, Blaðsíða 3

Eining - 01.08.1967, Blaðsíða 3
E I N I N G 3 SUMARMÁL Ritstjórn blaósióunnar: Guðmundur I’órarinsson og Einar Hanncsson. 1200 FELAGSMENN IUT Velheppnað þing á Siglufirði Níunda ársþing íslenzkra ungtempl- ara var haldið á Siglufirði dagana 30. júní til 2. júlí s.l. Þingið sóttu um 30 fulltrúuar frá ungtemplarafélögum víðs vegar af landinu, auk stjórnar og nefndarformanna samtakanna. Forseti þingsins var kjörinn Gunnar Lórenz- son, Akureyri og ritarar Valur Óskars- son, Hafnarfirði og Brynjar Valdimars- son, Kópavogi. Við þingsetningu fluttu ávörp og kveðjur séra Ragnar Fjalar Lárusson og Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri á Akureyri, en erindi á þinginu flutti Ól- afur Ragnarsson, fulltrúi. Þá ávarpaði bæjarstjóri Siglufjarðar, Stefán Frið- bjarnarson, þingfulltrúa í hófi, sem deildin á Siglufirði efndi til. 1 skýrslu stjórnar Islenzkra ung- templara, sem formaður samtakanna, Einar Hannesson, flutti, kom fram að mikil grózka hefur verið í starfseminni á liðnu starfsári. Stofnaðar hafa verið fjórar nýjar deildir: á Akureyri, í Kópavogi, Keflavík og á Akranesi. Með tilkomu þessara deilda, verða aðildar- félög IUT 14 talsins með samtals um 1200 félagsmenn. Einn merkasti þátturinn í starfi ung- templara var 50 ára afmælismót Nor- rænna ungtemplara, sem haldið var hér á landi s.l. sumar, en íslenzkir ung- templarar sáu um undirbúning og fram- kvæmd. Mót þetta sóttu um 200 erlend- ir ungtemplarar. Þá var skýrt frá und- irbúningi að þátttöku ungtemplara í næsta móti Norrænna ungtemplara, sem verður í Svíþjóð næsta sumar, og er gert ráð fyrir mjög góðri þátttöku frá Islandi. Þing IUT gerði nokkrar samþykktir m. a. um hina nýju æskulýðslöggjöf, er frumvarp kom fram um á Alþingi í vor. Fagnaði þingið frumvarpinu, en ákveð- ið var að þetta mál yrði tekið til með- ferðar síðar á vegum samtakanna og þá látið í ljós, hvað betur mætti fara í frumvarpinu að dómi ungtemplara. Lýst var ánægju með þá þróun, sem orðið hefur á skemmtanahaldi um verzl- unannannahelgina og fagnað aðgerðum lögregluyfirvalda til að stemma stigu við drykkjuskap ungs fólks um hvíta- sunnuhelgina. Hins vegar harmaði þing- ið að þeim aðilum, sem ábyrgð bera á því að fólk innan 21 árs aldurs, hafi áfengi undir höndum, skuli ekki refsað. Hvatti þingið yfirstjórn dómsmála til að taka þessi mál til gagngerðraryfirvegunar og væntir þess að fyrir ábyrgðarleysi það, sem felst í því að útvega unglingum áfengi, verði stranglega refsað. Þingið gerði samþykkt í tóbaksmál- um,þar sem enn er vakin athygli alþjóð- ar á niðurstöðum rannsókna fjölmargra vísindamanna um skaðsemi tóbaksreyk- inga. Hvatti þingið til þess að tóbaks- Efsta myn* 1: 300 ungtemplarar fara hópgöngu til kirkju. Miö mynd: Þing ÍUT í Gagn- fræðaskóla Siglu- fjarðar. Neðsta mynd: Mótssvæðið í Hólsdal.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.