Eining - 01.08.1967, Blaðsíða 15
EINING
15
IOGT opin leið á alþjóða-
vettvangi
Heimsþing templara verður í Istanbul
um mánaðamótin júní—júlí 1970. Þetta
var afráðið á eins konar framkvæmda-
ráðsfundi í Istanbul í apríl sl. Frá
þessu greinir einn af forgöngumönnum
bindindismanna í Noregi, Arne Goplen,
í grein í Folket 13. maí sl.
Alþjóðadeild IOGT (græni hálfmán-
inn) í Tyrklandi er sterk. Þar er einn
áhrifamesti maðurinn Ayhan Songar,
prófessor. Hann hefur unnið að því að
koma á samstarfi við bindindishreyf-
inguna í Búlgaríu, einnig hefur fyrrv.
sendiherra Búlgaríu í Svíþjóð unnið
kappsamlega að því, að koma á sam-
starfi milli Búlgaríu og Svíþjóðar á
sviði bindindismála. Prófessor Songar
mun einnig koma á sambandi um þessi
mál við Irak og Iran, en þaðan er þriðji
hluti læknastúdenta háskólans í Istan-
bul. Þjóðir á framfarabraut skilja vel
hvílíkur vágestur áfengisneyzlan er á
vegi þeirra og fagna því starfi IOGT á
alþjóðavettvangi. Verkefnin eru enn
næg, séu menn aðeins vakandi og á
verði.
-K-X -j< **
Vangá og slys
Öllum finnst okkur hin tíðu umferðar-
slys átakanleg, en geta menn ekki tamið
sér aðgát? I júní sl. sögðu blöðin frá
dauðaslysi í Reykjavík. Tveir ungir
menn um tvítugt aka bíl sínum á sveran
rafmagnsstaur, annar þeirra bíður
bana. Þeim hafði báðum orðið það á,
segir í frásögninni, „að líta á fólk, sem
var á gangstéttinni á gangi." Það gá-
leysi kostaði ungan mann lífið.
Um sama leyti var sagt frá manni,
sem sigldi ógætilega með tvo unga
sveina innanborðs og hvolfdi fleytunni,
en sem betur fór varð mannbjörg. —
Ógætilega var þó siglt. Mörg eru heil-
ræðin um að fara gætilega, en menn
virðast oft gleyma þeim, því fer sem
fer.
-x-x -j< -k-K
Áfengisneyzlan eykst í
Finnlandi
Bæði sænsk-finnska blaðið Hem-
bygden og Presstjánst skýrir frá því,
að árið 1966 hafi áfengisneyzlan í land-
inu aukizt um 6%, og á árunum 1961—
1966 hafi hún aukizt um 24%.
Aukningin er mest af veikari áfengu
drykkjunum, 12% á árunum 1965 og
1966, en á sama tíma óx þó neyzla
sterku drykkjanna um 2%. Á árunum
1961 til 1966 óx neyzla sterku drykkj-
anna um aðeins 1%, en neyzla veikari
tegundanna um 61%.
Árið 1958 var áfengisneyzlan, reikn-
uð í 100% áfengi, 1,62 lítri á nef í land-
inu, en 1966 2,5.
Niðurstaðan er sú, að hin mikla aukn-
ing neyzlu veikari drykkjanna, hefur
ekki komið algerlega í veg fyrir aukn-
ingu neyzlu sterku drykkjanna. Á Is-
landi er reynt að telja mönnum trú um,
að sterkt öl mundi draga mjög úr neyzlu
sterku drykkjanna, en þetta reynist
yfirleitt blekking.
-x-k -j< -K*
Sókn ungtemplara í
Svíþjóð
í marzmánuði í fyrra hófu sænskir
ungtemplarar allsherjar sókn til að afla
sér nýrra liðsmanna. Ýmsum verðlaun-
um, allt að bíl, var heitið þeim, sem
fræknastir yrðu í veiðiförinni. Árang-
urinn var hvorki meiri né minni en sex
þúsnnd nýir félagar, og þar með hefur
öll starfsemi sænskra ungtemplara í
landinu fengið nýjan fjörkipp.
Dalirnir og Skánhéraðið urðu sókn-
harðastir, bættu við sig tveim þúsund-
um nýrra félaga, og hrepptu bílinn að
verðlaunum.
Hér á landi er nú líka töluvert fjör í
ungtemplurum. — Vonandi halda þeir
sókninni áfram með farsæld og festu.
Unga kynslóðin á að taka við hinum
margvíslega vanda þjóðanna og veitir
ekki af að búa sem bezt í haginn fyrir
sig.
-K-K -)< -K-k
Áfengi og slys
Rannsókn sem læknafélag Bandaríkj-
anna lét framkvæma viðvíkjandi umferðar-
slysum, leiddi í ljós að 47% gangandi fólks
sem fórst í umferðinni, var ölvað. Tiu
sinnum fleiri umferðarslysum valda menn
með 1,5 promille áfengis í blóðinu, en hin-
ir með aðeins 0,5.
-K-K -j< -K9<
Þeir skulu njóta forréttinda
I London skal brátt taka til starfa
sérstakt sjúkrahús handa áfengissjúkl-
ingum, sem standa eitthvað ofarlega í
mannfélagsstiganum. Það á að rúma að-
eins 15 vistmenn, en þar þurfa menn
ekki að óttast að nöfn þeirra verði birt
né neitt um þá.
Félagið sem sér um þessa fram-
kvæmd, bendir á, að oft séu þessir menn
í ábyrgðarmiklum stöðum og því áríð-
andi, bæði vegna þeirra sjálfra og ann-
arra, að þeir séu fullkomlega starf-
hæfir.
Heimild: Alkoholfrágan.
Erlendar fréttir
Norska þjóðin er 3,8 milljónir. Talið er
að í Noregi séu 60—80 þúsund áfengis-
sjúklingar, og að árið 1966 hafi áfengis-
neyzla átt sök á 22 þúsundum slysa í iðn-
aði landsins.
* *
I nóvember 1966 fór fram almenn at-
kvæðagreiðsla um héraðabönn í Ohio-rík-
inu í Bandaríkjunum. Bannmenn sigruðu í
28 héruðum af 31. Árið 1933 höfðu 62%
borga og bæja ríkisins áfengissölur, en sl.
ár ekki nema 56%.
* *
Útvarpið í Prag hefur skýrt frá því, að
í Tékkóslóvakíu eyði þjóðin tveim þriðju
meira fyrir áfenga drykki en mjólk, og
meiru fyrir sígarettur en fyrir brauð og
smjör, hvorttveggja.
* *
í júní 1966 skrifar Yelena Korenevskaya
í Soviet Life, að „samkvæmt opinberum
skýrslum eigi áfengisneyzla sök á hverjum
9 af 10 afbrotum og glæpum. Vodka sé
aðalorsök hjónaskilnaða, flestir vandræða-
unglingar komi frá heimilum drykkju-
manna, og ölvun bílstjóra eða gangandi
manna eigi sök á flestum umferðarslys-
um.“ Sagt er ennfremur, að í Rússlandi
krefjist almenningur róttækra aðgerða
gegn þessu ástandi, allt að áfengisbanni.
* *
,,í Bretlandi eru nú 500.000 áfengissjúkl-
ingar. Þetta er fólk, sem leitt hefur yfir
sig ólæknandi sjúkdóm, aðeins með áfeng-
isneyzlu. Áfengið er nú (takið eftir, ég
segi áfengi, ekki áfengissýki) áfengið er
eitt stærsta samfélags vandamál þjóðar-
innar.“
Sir Donald Finnmore,
hæstaréttardómari.
* *
„Versti manndráparinn.“ Þessi eru orð dr.
Hallis Ingraham, heilbrigðismálaráðunautar
í New York: „Ekkert annað, hvorki byssu-
kúlur, sýklar né vírusar, drepa nálægt því
eins marga menn í Bandaríkjunum sem
sígarettan."
* *
Drykkjumönnum er öðrum fremur hætt
við berklum, segja þeir dr. Jack S. Olin
og dr. Stefan Grzybowski í Toronto,
Canada.
❖ *
80% drykkju-fanga í Don-fangelsinu
höfðu snert af tæringu, en ekki nema
33,3% hinna fanganna. Þetta leiddi berkla-
rannsókn í ljós.
* *
Prestur í írlandi, Daniel Lyons, segir:
„Algert bindindi er öllum farsælast. Ég
gerðist félagi samtakanna, The Total
Abstinence Association of the Sacred
Heart, fyrir 20 árum. Við erum 500.000 í
félaginu, og enginn okkar er í neinum
vanda staddur gagnvart áfengisneyzlu." —
Birtist í Our Sunday Visitor, 15. maí 1966
og Research Student Service, marz 1967.
Alert.