Eining - 01.08.1967, Blaðsíða 4
4
EINING
Framhald af 3. bls.
auglýsingar yrðu ekki leyfðar, og skor-
aði á ríkisstjórnina að gera raunhæfar
ráðstafanir í því efni, þar sem Alþingi
hafði á sínum tíma vísað slíku máli til
hennar. Látin var í ljós þökk til út-
varps og sjónvarps fyrir að leyfa ekki
tóbaksauglýsingar í þessum öflugu fjöl-
miðlunartækj um.
STJÓRN ÍUT.
I stjórn íslenzkra ungtemplara voru
kosnir: Formaður Einar Hannesson,
varaformaður Grétar Þorsteinsson, rit-
ari Gunnar Þorláksson, gjaldkeri
Hreggviður Jónsson,fræðslustjóri Aðal-
heiður Jónsdóttir og meðstjórnendur
Brynjar Valdimarsson og Sævar Hall-
dórsson. — Formaður Alþjóðanefndar
ÍUT, Hilda Torfadóttir, formaður fjár-
málaráðs Kristinn Vilhjálmsson, for-
maður útbreiðsluráðs Alfreð Harðar-
son og formaður styrktarmeðlima Áre-
líus Níelsson.
* -K *
Landsmót ÍLJT
Fyrsta Landsmót íslenzkra ungtempl-
ara var haldið á Siglufirði dagana 1. og
2. júlí sl. Þátttakendur voru um 300,
víðs vegar að af landinu, og dvöldu þeir
í tjöldum meðan mótið stóð yfir. Ung-
templarafélagið Hvönn á Siglufirði sá
um mótið, sem þótti takast vel í alla
staði.
Setning mótsins fór fram á íþrótta-
vellinum eftir hádegi á laugardag. For-
maður IUT, Einar Hannesson, setti mót-
ið með stuttri ræðu og Lúðrasveit Siglu-
fjarðar lék. Þá hófust íþróttir og leikir
á íþróttavellinum og var m.a. keppt í
knattspyrnu, langstökki, 100 metra
hlaupi og víðavangshlaupi. Um kvöldið
var svo haldin kvöldvaka að Hótel Höfn
og á eftir lék hlj ómsveitin Stormar fyr-
ir dansi til klukkan 2 eftir miðnætti.
Veður var mjög gott þennan dag, sól-
skin og hiti.
Á sunnudag varð að fella niður fyrir-
hugaða hópgöngu á Hólshyrnuna vegna
þoku, en klukkan 1 héldu mótsgestir
fylktu liði í kirkju og hlýddu á messu.
Sóknarpresturinn á Siglufirði, séra
Ragnar Fjalar Lárusson prédikaði.
Seinna um daginn hófust íþróttir og
leikir við tjaldsvæðið í Hólsdal og var
þar keppt í handbolta og hástökki. Hall-
dór Hermannsson frá Akureyri setti
Námskeiðið
Framhald af 2. bls.
um það á eftir, hverjir hefðu notið
mestrar gestrisni, og taldi hver fyrir
sig, að hún hefði ekki getað hlýlegri eða
meiri verið en þar, sem þeir höfðu
komið.
Landsstjórn Færeyja og bæjarstjórn
Þórshafnar buðu mönnum til kvöidverð-
ar síðasta daginn, en þá voru Islend-
ingarnir farnir heim.
Eyjarnar skoðaðar.
Einn daginn var farið til Kirkjubæj-
ar, hins forna biskupsseturs, og gamlar
söguminjar skoðaðar. Þar bjó skáldið
og sjálfstæðishetjan Jóhannes Paturs-
son og kona hans, Guðný Eiríksdóttir
frá Karlsskála, eins og kunnugt er. Nú
skýrði sonarsonur þeirra, Jóhannes
bóndi, okkur frá söguminjum staðarins
í reykstofunni gömlu, en Káre Holt
þakkaði fyrir okkar hönd með snjallri
ræðu, þótt stutt væri.
Daginn, sem við Islendingarnir héld-
um heim, fóru aðrir námsskeiðsgestir í
sjóferð um eyjarnar til þess að skoða
þær, en munu ekki hafa verið alls kost-
ar heppnir með veður, því að þoka var
nokkur. Gátum við Islendingarnir ekki
tekið þátt í þessari ferð. Hins vegar fór-
um við fram og aftur milli flugvallar-
ins í Vogey og Þórshafnar og nutum
sums staðar á leiðinni hins ágætasta út-
sýnis, og á heimleiðinni höfðum við
prýðilega útsýn úr flugvélinni yfir
Mykines, vestustu eyjuna, hamrabjörg
hennar og fagurt graslendi.
Nokkrir okkar Islendinganna gripu
sér stund til þess að fara ofurlítið um
eyjarnar. Ég og kona mín skruppum t.
d. til Klakksvíkur, en þar þekktum við
fólk. Fórum við fyrst á skipi til Austur-
eyjar, síðan á bíl yfir eyjuna — og fór-
um þá framhjá Götu, þar sem Þrándur
bjó, og loks á bát um eyjasund til
Klakksvíkur. Þótti okkur mjög fallegt í
Klakksvík. Sá bær hefur vaxið ákaflega
á stuttum tíma, og eru framkvæmdir
þar miklar. Þar er verið að ljúka við
ö----------------------------------ö
þarna nýtt Akureyrarmet í hástökki
drengja, stökk 1,78 metra. Klukkan hálf
átta var varðeldur við tjaldstað, en að
honum loknum sameiginleg kaffi-
drykkja að Hótel Höfn. Þar voru af-
hent verðlaun og mótinu slitið. Að síð-
ustu lék hljómsveitin Gautar fyrir
dansi. Formaður mótstjórnar var Jónas
Ragnarsson.
jarðgöng mikil gegnum fjallið til Árna-
fjarðar.
Það var sameiginlegt álit okkar Is-
lendinganna, sem í þessari för vorum,
að náttúrufegurð væri mikil í Færeyj-
um. Þótti okkur undrun sæta, hve götur
eru góðar í Þórshöfn, þótt víða séu þær
ærið mjóar. Eins er vegakerfið í eyjun-
um furðulega gott, þegar litið er á vega-
lengdir og fámenni eyjarskeggja, en
þeir eru innan við 40 þúsund að tölu.
Þá vöktu skólar þeirra athygli okkar,
svo myndarlegir voru þeir að sjá. Þjóð-
minjasafn þeirra sáum við og náttúru-
gripasafn, og er hvoru tveggja sérstak-
lega vel og smekklega fyrir komið.
Kirkjubók þeirra sá ég hina elztu, frá
1687 að mig minnir.
Fólkið reyndist okkur ákaflega blátt
áfram og alúðlegt, bæði það, sem við
kynntumst á námskeiðinu, og eins ann-
að, sem við hittum á förnum vegi, í búð-
um, á ferðum, á götunni. Hefðum við
flest eða öll viljað, að dvöl okkar í eyj-
unum hefði getað orðið lengri, en þess
var ekki kostur að þessu sinni-
Ólafur Þ. Kristjánsson.
Bindindismótið
Góðar voru fréttir blaða og út-
varps að þessu sinni af skemmtun-
um manna um hina alræmdu verzl-
unarmannahelgi. Víða voru mót og
ýmsar skemmtanir, en flest eða
allt þar vandræðalaust. Enginn ó-
fögnuður og engin slys. Vissulega
fögnuðu menn slíkum fréttum.
Bindindismenn mega vel una því
lofsorði, sem blöð báru á mót
þeirra að Galtalæk. Sjálfsagt eiga
þeir, sem því stjórnuðu, eftir að
láta blaðinu í té frásagnir af mót-
inu og mun það þá birtast í næsta
tölublaði Einingar.
Bindindismenn áttu upphafið að
þessum áfengislausu skemmtunum
um verzlunarmannahelgina, og
gerðust þar, eins og reyndar oft-
ar, góð fyrirmynd. Hinn góði ár-
angur, sem nú hefur náðst, er að
mestu leyti að þakka áfengis&cmm
á skemmtununum. Þess skyldu
menn minnast.