Okkar á milli - 01.10.1987, Side 2
Bókin sem beðið
r*qBÓ K hefur verið eftir Bók mánaðarins
LJU MÁNAÐARINS Fulltverö: 1.790 kr.
Okkarverð: 1.430 kr.
Bók sem veitir svör við
spumingum um tákn drauma
Bók mánaðarins að þessu sinn er Drauma-
ráöningabókin, sem Bókhlaðan gefur út,
en Þóra Elfa Björnsson hefur tekið saman.
Þetta er bók, sem veitir svör við þúsundum
sþurninga um merkingu drauma. Hún er
fyrst boðin félagsmönnum Veraldar á vild-
arkjörum, en verður síðar seld á almenn-
um markaði.
Dæmi úr daglega lífinu
Efni bókarinnar er þríþætt. Fyrst eru yfir-
litskaflar um drauma, sem maðurinn hefur
velt fyrir sér frá upphafi vega, ráðningu
þeirra og ýmis atriði í sambandi við hana:
Liti, umhverfi, nöfn, martröð og fleira. Ann-
ar og lengsti efnisþátturinn eru atriðisorð,
sem raðað er upp í stafrófsröð, og sagt frá
í stuttu máli hvað hin ýmsu tákn í draumi
eru talin merkja. Þriðji þátturinn eru svo
íslensk dæmi úr daglega lífinu, þar sem
fólk segir frá draumum sem hafa komið
fram. Sýnishorn af öllum efnisflokkunum
þremur er að finna hér að neðan.
Milli draums og vöku
En er eitthvað að marka drauma? Við skul-
um fletta upp í Draumaráöningabókinni og
grípa niður í einn af inngangsköflunum:
„Auðvitað er endalaust hægt að deila um
það, hvort mark er að draumum, en enginn
getur efast um að alla dreymir, þrátt fyrir
fullyrðingar einstakra manna um hið gagn-
stæða. Og margir taka eftir ákveðnu sam-
hengi milli draums og vöku. Til eru þeir
sem skrifa hjá sér drauma sína og ráðn-
ingar ef einhverjar verða... Það er ekki allt-
af létt að spá í ráðningu draums þótt
stundum liggi hún Ijós fyrir... Mannshugur-
inn er sífellt að taka við boðum, bæði sjálf-
rátt og ósjálfrátt. Þessi boð eða tákn ber
ekki fyrir augu allra á sama hátt, svo að
ekki er skrýtið þótt mörg draumtákn hafi
tvær gagnstæðar merkingar."
Engin úlpa var nógu þykk
Jón Baldursson bridgespilari spilaði einu sinni á stuttu móti
í Reykjavík, og haföi lið hans gengiö hálf illa, en þó ekki
verr en svo, að aðeins þurfti smávinning til að þeir yrðu
ofan á. Nóttina fyrir síðasta leikinn dreymdi konu hans,
Elínu Bjarnadóttur, að hún ætlaði að kaupa á hann úlpu í
stórri verslun, þar sem voru margir rekkar af úlpum. Hún
gekk á milli og skoðaði, en fannst engin úlpa nógu þykk á
hann. Elín réði drauminn þannig, að lið Jóns mundi tapa og
fór svo; stigin í riðlinum dugðu ekki - þau voru ekki nógu
þykk.
Hraður akstur — £járhagsvandi
AKSTUR: Ógætilegur og hraður akstur boðar vandræöi í
fjármálum. Sé ekið í vatni er það fyrir góðu. Að aka hratt
eftir hlykkjóttum vegi getur boðað vafasamt fyrirtæki og
skaltu gæta að öðrum draumtáknum. Að aka í hestvagni
er fyrir giftingu og er því betra sem vagninn er ræfilslegri.
Glæsilegur vagn er fyrir minnkandi tekjum.
ÁST: Að dreyma ást og að vera elskaður veit á að þú
getur reitt þig á stuðning góðra vina. Dreymi karlmann að
stúlka leggi ást á hann, en hann er ekki sama sinnis, þá er
það fyrir gæfu. Ekki þykir það fyrir góðu að vera ástfanginn
af gömlu fólki.
2