Okkar á milli - 01.10.1987, Qupperneq 3
Ahugi á draumum er — segir Þóra Elfa Bjömsson,
— . • . — höfundur Draumaráðninga-
sist minni nu en aour bókarinnar
Þóra Elfa Björnsson, höfundur Drauma-
ráðningabókarinnar, sem er bók mánaðar-
ins aö þessu sinni, býr að Skólagerði 41 í
Kópavogi, og við spjölluðum við hana
stundarkorn. Hún er fædd í Reykjavík, en
á ættir að rekja til Borgarfjarðar. Foreldrar
hennar voru Karl L. Björnsson úr Borgar-
nesi og Halldóra Beinteinsdóttir Björnsson,
skáldkona frá Grafardal.
Kennir prentiðn
Þóra Elfa er fyrsta íslenska konan sem
lærði prentiðn og hefur starfað talsvert
mikið við prentverk um dagana. Hún er nú
kennari við bókagerðardeild Iðnskólans í
Reykjavík og kennir umbrot og setningu.
Auk þess hefur hún fengist við ritstörf og
þýðingar í tómstundum alla ævi. Aðeins
fimmtán ára gömul vakti hún athygli fyrir
Ijóð sín, sem birtust í safninu Ljóð ungra
skálda, sem Magnús Ásgeirsson annaðist.
Ófrávíkjanleg staðreynd
„Áhugi fólks á draumum er síst minni nú
en áöur,“ segir Þóra Elfa. „Margir álíta aö
gamla draumspekin heyri fortíðinni til og
sé að líða undir lok, en ég held að svo sé
alls ekki. Draumar eru ófrávíkjanleg stað-
reynd í lífi manna, og forvitni um þýðingu
þeirra vaknar snemma hjá flestum. Ég
varð vör við það fyrir nokkrum árum, að
draumráöningabók vantaði og samdi þá
litla bók að áeggjan útgefanda, en hún er
nú löngu uppseld. Þessi nýja bók er mun
stærri í sniðum og reynt að gera sem flest-
um efnisþáttum varðandi drauma og ráðn-
ingu þeirra sem ítarlegust skil.
Snæbjörn í Hergilsey
Ég hef aflað mér efnis í bókina á ýmsan
hátt, rætt við fólk og fengið það til að segja
mér frá draumum sínum, sem hafa komið
fram. Einnig hef ég lesið ævisögur og end-
urminningar manna og viðað að mér efni
úr þeim. Mér er það til dæmis minnisstætt,
þegar ég las ævisögu Snæbjarnar í Her-
gilsey, sem var mikil kempa og karlmenni
eins og allir vita, þá kemur í Ijós, að hann
trúði á drauma og réri og lagði lóð sín eftir
Þóra Elfa Björnsson
því hvernig hann hafði dreymt. Svo að það
eru ekki aðeins veiklundaðar konur sem
taka mark á draumum.
Til gagns og gamans
Mörg tákn í draumum eru bundin ákveðn-
um persónum, en ég hef eingöngu sagt frá
því sem almennt eru álitið. Ég hef haft
ánægju af að safna þessum fróðleik, og
vona að fleiri hafi líka gaman af honum -
og kannski jafnframt svolítið gagn.“
Flaut á torfusnepli niður á
Halldóra Björnsdóttir, húsfreyja í Kefla/k: Er Loftur sonur
minn var sex ára, dreymdi mig eina nóttina, að ég sá hann
fljóta á torfusnepii niður á í miklum vexti. Mér fannst ég
stökkva niður með ánni, grípa í torfuna og ná drengnum á
land. Næsta dag veiktist Loftur af svo hastarlegri barkar-
bólgu aö honum var vart hugað líf. Hálsinn var svo bólginn,
að hann gat ekki andað og þegar sent var í ofboði eftir
lækni náðist ekki í hann. Mér hugkvæmdist að láta dreng-
inn anda að sér gufu, og þá loksins gat hann dregið and-
ann eðlilega.
Hvað tákna mannanöfn í draumi?
Ágúst: Gott nafni í draumi, boðar gæfu.
Albert: Merkir kappsemi.
Arnbjörn: Merking þess er auðævi.
Baldvin: Nafn þetta boðar gestakomu.
Garðar: Boðar að steinn verði lagður í götu þína.
Hrafn: Þú munt frétta lát nákomins vinar.
Maria: Boðar velgengni.
Ólafur: Er sumum fyrir ábata en öðrum fyrir illu, sérstaklega
ef draumamaðurinn er læknir.
Páll: Er fyrir trúarlegri athöfn.
Þorsteinn: Táknar áhrifamikinn vin sem er þér hliðhollur.
3