Okkar á milli - 01.10.1987, Page 4
Kæru félagsmenn!
Ég vil byrja á því aö bjóöa velkomna
þá fjölmörgu sem gengið hafa í
klúbbinn upp á síðkastið, en þeir
skipta hundruðum. Það er von mín,
að þeir eigi eftir að kunna vel við sig
í Veröld og muni komast að raun
um, að þar er hægt að spara þús-
undir króna.
Mánaðarbókin nú i október er
Draumaráðningabókin, sem Þóra
Elfa Björnsson hefur tekið saman.
Þetta er athyglisverð bók sem veitir
svör við þúsundum spurninga um
merkingu drauma og vonandi hafa
margir áhuga á henni.
Aukatilboðin eru mörg að þessu
sinni og verðið á mörgum þeirra
einstaklega lágt. í bókapakkanum
eru til dæmis þrjár góðar skáldsögur
um konur og eftir konur; allt nýlegar
bækur, sem vakið hafa verðskuld-
aða athygli. Ritsafnið Að vestan eru
fimm sérlega áhugaverðar bækur í
fallegu bandi. Fyrir unnendur
myndasögubóka bjóðum við þrjár
bækur um hetjuna Frank, og fyrir
yngstu krakkana skemmtilegar
barnabækur um Olla, Polla og Alla.
Bókin Furður og fyrirbæri ætti að
gleðja alla þá mörgu, sem lásu Mið-
ilshendur. Tvö fyrstu bindin af Ver-
aldarsögu Fjölva eru nú í boði, en
börn á öllum aldri hafa bæði gagn
og gaman af því verki. Tvær nýjustu
bækur Jóns Bjarnasonar frá Garðs-
vík, sem fjalla um gott fólk og fólk
sem ekki má gleymast, eru hvort
tveggja í senn skemmtilegar og
fróðlegar bækur - og þannig mætti
lengi telja.
Með bestu kveðjum,
V^vvtVv.V'
Kristín Björnsdóttir
framkvæmdastjóri
Það er gott að lesa
léttmeti í rúminu
— segir vinningshafi Veraldar á Akureyri
Jæja, þá er komið í Ijós hver hreppti hinn
stórglæsilega Technics-geislaspilara frá
Japis. Dregið hefur verið í júlí-getrauninni,
og hin heppnu eru hjónin Svandís Stef-
ánsdóttir og Einar Fr. Malmqvist, en þau
eru búsett á Akureyri.
Hittist vel á
Þegar við hringdum til þeirra og sögðum
gleðitíðindin, var Svandís heima og varð
bæði undrandi og glöð. „Það hittist svei-
mér vel á,“ sagði hún. „Gamli plötuspilar-
inn okkar er einmitt farinn að gefa sig. Við
höfum reyndar aldrei átt ýkja stórt plötu-
safn, en nú getum við farið að safna
geisladiskum. Ég hlakka til að kynnast
þessum nýju og fullkomnu hljómgæðum
og hef mikið heyrt af þeim látið.“
Margs konar bækur
Við spurðum Svandísi hvort þau hjónin
læsu mikið af bókum og hvers konar bæk-
ur féllu þeim best. „Við höfum staðið í hús-
byggingu að undanförnu og þess vegna
haft minni tíma til lestrar en venjulega. Mér
finnst mjög gott að lesa eitthvert léttmeti í
rúminu á kvöldin áður en ég sofna. Annars
lesum við margs konar bækur, bæði skáld-
verk og fræðibækur."
Tecnics-geislaspiiarinn frá Japis.
Hæg heimatökin
Þau hjónin hafa búið á Akureyri um
sautján ára skeið og una hag sínum hið
besta. Þau eiga fimm börn og flest upp-
komin; hiö elsta 25 ára, en hið yngsta 15
ára.
Þegar við óskuðum Svandísi og manni
hennar til hamingju með vinninginn og
kváðumst senda geislaspilarann í pósti,
varð henni að orði: „Það hittist líka vel á. Ég
vinn einmitt á pósthúsinu, svo að það
verða hæg heimatökin að nálgast gripinn,
þegar hann kemur.“
Frá Akureyri (Ljósmyndari: GunnarS. Guðmundsson).
4