Okkar á milli - 01.10.1987, Qupperneq 6
BOKAPAKKINN
Sögur eftir
þrjár kunnar
skáldkonur
[ bókapakka Veraldar eru að þessu sinni
þrjár góðar skáldsögur, sem Iðunn hefur
gefið út og eru eftir kunnar erlendar skáld-
konur. Og allar fjalla þær um konur, líf
þeirra og ástir, baráttu og vandamál.
Fyrsta ástin
Elskhuginn eftir Marguerite Duras fjallar
um fyrstu ástina og er raunsönn frásögn
ungrar, franskrar skólastúlku. Þetta er
saga hinnar forboðnu, þöglu ástrfðu sögð
á kynngimagnaðan hátt, þar sem gleði og
sorg, ást og ótti endurspegla andstæður
mannlífsins. Höfundurinn, Marguerite Dur-
as, er meðal fremstu rithöfunda Frakka nú
á dögum.
Á brúðkaupsafmælinu
Önnur sagan í bókapakkanum nefnist Hin
konan og er eftir Joy Fielding, en hún hef-
ur hlotið heimsfrægð fyrir bækur sínar um
nútímakonur. Á fjögurra ára brúðkaupsaf-
mæli söguhetjunnar Jill kemur ung stúlka á
hennar fund. „Ég heiti Nicole Clark," segir
hún, réttir henni höndina og bætir síðan
við brosandi: ,,Ég ætla að giftast mannin-
um þínum!“ Þetta er spennandi saga, sem
erfitt er að leggja frá sér.
Sjö konur segja frá
Þriðja sagan er svo Konurnar á Brewster
Piace eftir Gloriu Naylor. Hún segir frá sjö
konum, sem borist hafa hver með sínum
hætti í þessa blindgötu, Brewster Place, í
bandarískri stórborg; heim fárra valkosta
Nr.: 1564
Fullt verð: 3.484 kr.
Okkar verð: 1.950 kr.
og endalausra vonbrigða. Uppruni þeirra
er ólíkur, en allar eiga þær sér drauma, og
þær standa saman gegn fjandsamlegu
umhverfi og gegn þeirri grimmd, sem ör-
birgð og vonleysi ala af sér.
Nr.: 1565
Fullt verð: 838 kr.
Okkar verð: 670 kr.
Dagbókln hans Dadda
Margur hefur skemmt sér vel yfir sjón-
varpsþáttunum um Adiran Mole, sem
byggðir eru á Dagbókinni hans Dadda eftir
Sue Townsend. En það er jafnvel ennþá
skemmtilegra að lesa bókina um þennan
makalausa táning og hispurslausa hrein-
skilni hans varðandi vandamál unglings á
gelgjuskeiði. Fjölvi hefur gefið bókina út á
íslensku, og hún hefur orðið fyrir valinu
sem aukafélagsbók Veraldar að þessu
sinni.
Einlæg og hlægileg
Þetta er skáldsaga, en bygging hennar er
mjög óvenjuleg: dagbók, sem gerir það að
verkum, að frásögnin verður í senn einlæg
og hlægileg. Daddi á við ótal vandamál að
stríða, sem stafa af því að hann er að
þroskast og hætta að vera barn. Foreldrar
hans skilja, það er gerð uppreisn í skólan-
um, og hann verður ástfanginn í fyrsta
sinn, af henni Pandoru. Frá öllu þessu
segir hann dagbókinni sinni á smellinn og
nýstárlegan hátt.
Heimsathygli
Höfundurinn, Sue Townsend, var ung og
óþekkt fyrir fjórum árum, þegar þessi fyrsta
bók hennar kom út. Hún fékk strax frábær-
ar viðtökur og hefur nú aflað höfundi sínum
heimsfrægðar á örskömmum tíma. Söng-
leikur var sýndur um Adrian Mole í Lund-
únum við mikla aðsókn, og sjónvarpsþætt-
irnir um hann eru nú sýndir víða um heim.
6