Okkar á milli - 01.10.1987, Qupperneq 7
Ráð Jane Fonda hafa
reynst lang best
Nr.: 1566
Fullt verð: 850 kr.
Okkar verð: 680 kr.
Á okkar dögum er líkamsrækt sinnt af meiri
áhuga en nokkru sinni fyrr. í fjölmiðlunum
fjalla sérstakir þættir um hana, og alls kon-
ar bækur um fegurð og hreysti hafa
streymt á markaðinn. Sú þeirra, sem mest
og lengst hefur selst, er Likamsrækt meö
Jane Fonda - og hana býður Veröld nú
aftur á vildarkjörum vegna fjölda áskorana.
Æskilegt fæöi
í bók sinni gefur Jane Fonda nokkur holl-
ráð varðandi æskilegt fæði, og að margra
dómi hafa þau reynst lang best. Þessar
ráðleggingar eru einfaldar og augljósar;
ekkert flókið megrunarfæði, heldur aðeins
ábendingar um fitusnauðan og næringar-
ríkan mat, sem alls staðar er hægt að fá.
Á stofugólfinu heima
Bókin samanstendur af skýrum, stuttorð-
um texta og ótal myndum, þar sem Jane
Fonda og aðstoðarstúlkur hennar sveigja
sig og teygja. Fjallað er um hvern líkams-
hluta fyrir sig á auðskilinn hátt, þannig að
þeir sem vilja hlíta ráðum hennar þurfa
ekki að leita ugpi leikfimikennara og leik-
fimisal, heldur geta notast við stofugólfið
heima.
Sífelldar áhyggjur
í formála bókar sinnar kemst Jane Fonda
svo að orði: „Frá því ég man fyrst eftir mér
voru allar konur, sem ég þekkti - mamma,
vinkonur hennar, amma, barnfóstran mín
og systir mín - sífellt að fjargviðrast yfir
líkamsbyggingu sinni. Alltaf var eitthvað
að, sem olli þeim áhyggjum: þrifleg læri,
lítil brjóst eða breiður botn. Engin þeirra
virtist ánægð með útlit sitt, og það átti ég
bágt með að skilja, því að í mínum barns-
legu augum voru þær alveg eins og þær
áttu að vera.“
Heilbrigð skynsemi
Og hún heldur áfram nokkru síðar: „Það
var ekki fyrr en um þrítugt, þegar ég varð
barnshafandi í fyrsta sinn, að ég fór að
breyta um lífshætti. Eftir því sem barnið óx
innra með mér, fór mér að verða Ijóst, að
líkamann mátti ekki vanrækja. Ég gerði
mér grein fyrir því, að með heilbrigðri skyn-
semi, fræðslu og staðfestu gæti ég fundið
nýja leið til hreysti og fegurðar... Ég ákvað
að skrifa þessa bók, ekki vegna þess að
ég telji mig neinn sérfræðing af guðs náð,
heldur vegna þess að mig langar til að
deila því, sem ég hef verið að bisa við að
læra, með öðrum konum.“
7