Okkar á milli - 01.10.1987, Síða 10
FYRIR
YNGSTU
BÖRNIN
Fjórar
mynda-
bækur
um
Olla,
Polla
og
Alla
Fyrir yngstu börnin býöur Veröld spánnýjar
myndabækur frá Iðunni um kumpánana
Olla nashyrning og félaga hans, Polla og
Alla. Höfundurinn er Mauri Kunnas, en
Þorsteinn frá Hamri hefur þýtt textann á
íslensku.
Bækurnar heita Ferðin til tunglsins, Litrikur
dagur, í sjónvarpinu og Reikningsveisla.
Þeir félagar lenda í hinum ótrúlegustu
ævintýrum, sem sagt er frá í stuttum texta
og stórskemmtilegum teikningum. Þeir
syngja í sjónvarpinu, þjóta í geimflaug til
tunglsins og bjóða frændfólki sínu til veislu
á þjóðhátíðardegi nashyrninga. ímyndun-
araflinu er gefinn laus taumur, svo að allt
er mögulegt - og það þykir öllum krökkum
skemmtilegt.
Nr.: 1567
Fullt verð: 1.192 kr.
Okkar verð: 953 kr.
Á slóðum
manna 09 laxa
Nr.: 1568
Fullt verð: 1.094 kr.
Okkar verð: 875 kr.
Að loknu bærilegu laxveiðisumri er gott að
taka sér í hönd bókina Á slóðum manna og
laxa eftir Hallgrím Jónsson frá Laxamýri,
en hann er sonur Jóns H. Þorbergssonar,
hins kunna bændahöfðingja og merkis-
manns.
Saga höfuðbólsins
f bókinni er rakin saga höfuðbólsins Laxa-
mýrar í Suður-Þingeyjarsýslu og greint frá
Laxamýrarmönnum bæði að fornu og nýju,
en inn í frásögnina fléttast síðan margs
konar atvik og atburðir. Mjög margt fólk
kemur við sögu og slóðir þess og örlög eru
rakin víða um land.
Stangveiðar í Laxá
Frásagnir eru einnig af slysförum, voveif-
legum atburðum og reimleikum. Fjallað er
um laxakistuveiðar og stangveiðar í Laxá í
Aðaldal og getið kunnra veiðimanna. Þá
eru frásöguþættir af þingeyskum Ijóða-
smiðum, skyggnst um í réttum og sagt frá
daglegu lífi í sveitum.
10