Okkar á milli - 01.10.1987, Qupperneq 12
TÓNSNILLINGARNIR:
Tvclr í viðbót
í síðasta blaði buðum viö úrval úr verkum tíu tónsnillinga; mjög
vandaðar og eftirsóttar hljómplötur, sem ekki fást í verslunum
og eru því eingöngu boðnar félagsmönnum Veraldar. Við
sögðum frá því, að átta plötur væru komnar til viðbótar í þess-
um flokki, og nú eru tvær þeirra fáanlegar: Gershwin og Ravel.
Síðar bjóðum við svo Debussy, Bach, Liszt, Sibelíus, Verdi og
Rimsky-Korsakoff.
Tvær saman: Plötur Kassettur
Nr.: 3158 4112
Okkar verð: 1.080 kr. 1.080 kr.
Þín leið tll að spara
• Þeir sem nota haustmánuðina til að dytta að innanhúss,
ættu að fletta upp í Afsláttarbók Veraldar og aðgæta hvaða
málningar- og byggingavöruverslanir veita afslátt.
• Leiðir allra íslendinga liggja í Kringluna þessa dagana, og
þess vegna viljum við minna á, að margar verslanir sem
þar eru veita félagsmönnum Veraldar afslátt.
• Það kemur að því í lífi margra, að þeir þurfa að nota gler-
augu. Gleraugu eru dýr, en félagsmenn Veraldar fá afslátt í
átta gleraugnaverslunum. Er því ekki sjálfsagt að versla við
einhverja þeirra?
• Að lokum: Ætlarðu að fá þér nýja skó? Skyldu margar skó-
verslanir vera í Afsláttarbók Veraldar? Hvernig væri að gá
að því, áður en kaupin eru gerð?
Furður og fyrirbæri
Áhugi á dulrænum efnum hefur lengi verið
eitt af þjóðareinkennum okkar (slendinga
og virðist ekki fara dvínandi þrátt fyrir raun-
sæi og efnishyggju nútímans. Það sýnir
bókin Furður og fyrirbæri, sem Erlingur
Davíðsson hefur skráð og Skjaldborg gaf
út fyrir fáum árum.
Þrír kunnir miölar
Þrír kunnir miðlar og margt fleira fólk segir
frá dulrænni reynslu sinni í þessari bók.
Miðlarnir eru Einar Jónsson á Einarsstöð-
um, Anna Kristín Karlsdóttir, Seltjarnar-
nesi, og Guðrún Sigurðardóttir frá Torfu-
felli, en aðrir sögumenn eru: Erla Ingileif
Björnsdóttir, Svanfríöur Jónasdóttir, Leó
Guðmundsson, Freygerður Magnúsdóttir,
Ásta Alfreðsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir
og Sigríður Pétursdóttir.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmm
Nr.: 1570
Fullt verð: 750 kr.
Okkar verð: 595 kr.
Draugagangur í leikhúsi
Sem dæmi um efni bókarinnar má nefna,
að einn af áhugaleikurum Leikféiags Akur-
eyrar mun á sínum tíma hafa látið þess
getið að eftir sinn dag myndi hann gera
vart við sig í leikhúsinu. Freygerður Magn-
úsdóttir segir m.a. þannig frá, er hún kvöld
eitt var ein í leikhúsinu að vinna við leik-
tjöld á sviðinu: ,,En þá heyrði ég að aðal-
dyrnar voru opnaðar frammi og einhver
gekk inn í salinn... Síðan var gengiö inn
með einni sætaröðinni og sæti skellt niður.
Bjart var í salnum og sást þó enginn mað-
urinn, aðeins heyrðist greinilegt fótatakið
þar sem einhver ósýnilegur gekk...“
12