Okkar á milli - 01.10.1987, Side 13
Nr.: 1571
Fullt verð: 3.750 kr.
Okkar verð: 2.850 kr.
Fimm bækur
í fallegu bandi
Safn til sögu íslend-
inga í Vesturheimi
Aö vestan nefnist fimm binda safn til sögu
íslendinga í Vesturheimi, sem Árni Bjarn-
arson hefur tekiö saman, en hann hefur allt
frá æskuárum reynt með ýmsum hætti aö
efla samskipti milli Vestur-l’slendinga og
heimaþjóðarinnar. Skjaldborg gefur verkið
út, og Veraldar-félögum bjóðast nú þessar
fimm bækur í fallegu bandi á aðeins 2.850
kr.
Um 1200 blaðsíður
Þetta ritsafn er um 1200 blaðsíður að
stærð og er einstakt i sinni röð. Lesandinn
fylgist með hetjusögu vesturfaranna allt frá
því að þeir yfirgefa æskustöðvarnar hér
heima og leggja á hið breiða haf í leit að
framtíðarlandinu vestan Atlantsála, baráttu
þeirra við ótal erfiðleika í lítt numdu landi
meðal framandi þjóðflokka, hugðarefnum
þeirra, lífstrú og skoðunum og ræktarsemi
og hlýhug til gamla Fróns.
Ævintýrið mikla
Bindin fimm heita: Þjóðsögur og sagnir,
Sagnaþættir Sigmundar M. Long, Sagna-
þættir og sögur, Minningaþættir Guð-
mundar i Húsey og Vestur-íslendingar
segja frá. Með því að lesa þetta athyglis-
verða ritsafn er hægt að kynnast rækilega
ævintýrinu mikla um frændur okkar og vini
í Vesturheimi, afrekum þeirra og örlögum,
sem engan lætur ósnortinn.
Jón Bjarnason frá Garðsvík varð snemma
landskunnur fyrir snjallar lausavísur, en
hér eru í boði tvær bækur eftir hann, sem
hafa að geyma viðtöl og frásagnir: Fólk
sem ekki má gleymast (1983) og Gott fólk
(1984):
Þingeyskt loft
Árið 1974 kom fyrsta bókin frá hendi Jóns
Bjarnasonar í Garðsvík, Þingeyskt loft hét
hún og var safn af kvæðum og stökum.
Svo vel var bókinni tekið, að tveim árum
seinna kom framhald hennar Meira loft.
Árið 1979 hóf Jón svo ritun endurminninga
sinna í fjórum bindum og hétu þau
Bændablóð, Hvað segja bændur nú,
Bændur segja allt gott og Bændur og
bæjarmenn.
Nýr tónn
í nýjustu bókunum tveimur kveður við
nýjan tón hjá Jóni. Þar birtast frásagnir af
ýmsum sem hann hefur kynnst á lífsleið-
inni og viðtöl við skemmtilegt fólk; gott fólk,
fólk, sem ekki má gleymast.
Gott fólk sem
ekki má gleymast
Nr.: 1572
Fullt verð: 1.451 kr.
Okkar verð: 995 kr.
arnmtmm
mmmmm
13