Leo - 01.12.2003, Page 7
Hluti keþþertda á Hængsmótinu sl. vor. Fremst á myndinni eru keþþendur frá íþróttafélaginu Akri á Akureyri, og við hliðina á þeim er íþróttafélagið Gnýr
frá Sólheimum í Grímsnesi. Þá koma Suðri, Gróska, Örvar og Snerþa. Fjœrst er stór hóþurfrá Iþróttafélaginu Eik frá Akureyri. - Mynd: Jósep Siguijónsson.
og kostnaði þannig haldið niðri. Tekjur af blaðinu renna
óskiptar í verkefnasjóð klúbbsins en úr honum er úthlut-
að fé til styrktar ýmsum góðum málefnum. Stærsta verk-
efni klúbbsins og það sem krefst mestrar vinnu er Hængs-
mótið sem haldið er í maíbyrjun ár hvert og var mótið í ár
það 21. í röðinni. Hængsmótið er íþróttamót fyrir fatlaða
og er keppt í boccia, lyftingum, borðtennis og bogfimi.
Keppendur í íþróttahöllinni voru 324 að þessu sinni frá 18
íþróttafélögum alls staðar af landinu og hafa ekki áður
verið svo margir. íþróttafélagið Akur hélt Norðurlandsmót
í boccia haustið 2002 en Hængsmenn tóku að sér að sjá
um alla dómgæslu á því móti.
Að vanda er mikið sungið af jólalögum á jólafundum. Hér eru Jón Heiðar
Ámason og Aðalbjöm Pálsson forsöngvarar á jólafundinum 2002.
Hvaleyrarvatn þar sem félögum var gerður góður viður-
gjömingur auk þess að vera leystir út með gjöf, bókinni
„Græðum hraun og grýtta mela“. Um kvöldið var síðan
móttaka í minjasafni Hafnarfjarðar og síðan haldið til há-
tíðarkvöldverðar og skemmtidagskrár í Fjörukránni.
Þetta var í alla staði hin ánægjulegasta og skemmtileg-
asta ferð. Á fyrra starfsári, að fmmkvæði Hængsmanna,
var tekin ákvörðun um að Lionsklúbbamir á Eyjafjarðar-
svæðinu myndu ráðast í það verkefni að halda alþjóðlegar
unglingabúðir Lions hér á landi. Búðimar vom starfrækt-
ar í Hrafnagilsskóla dagna 11.-22. júlí, en nánar er greint
frá þeim annars staðar í blaðinu í máli og myndum.
VERKEFNI
Hann Leó okkar, blað þetta sem þú, lesandi góður, hefur í
höndunum er aðalfjáröflunarleið Hængs. Blaðið er gefið
út í u.þ.b. 7.000 eintökum og borið í hvert hús á Akureyri
í byrjun desember, auk þess sem blaðinu er dreift í nær-
sveitum og grannbyggðum á Eyjafjarðarsvæðinu. Blaðið
er unnið í sjálfboðavinnu að svo miklu leyti sem hægt er
VERKEFNASJÓÐUR
Úr verkefnasjóði var veitt fé til ýmissa mannúðar- og
framfaramála eins og jafnan áður. Má þar nefna verkefni
í gmnnskólum sem tengdust bmnavömum og vímuvöm-
um. Styrk til sinna góðu verka fengu m.a. Mæðrastyrks-
nefnd Akureyrar, Hjálpræðisherinn, íþróttafélagið Akur,
íþróttafélagið Eik, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
vegna drykkjarlaugar í Kristnesi, og heimahjúkrun
Heilsugæslustöðvarinnar var afhent minningargjöf um
góðan vin Hængsmanna, Níels heitinn Halldórsson, en
hann samdi myndagátuna í Leó í 25 ár endurgjaldslaust.
ÞAKKIR
Um leið og við óskum þér, lesandi góður, gleðilegra jóla
viljum við þakka öllum þeim fjölmörgu sem hafa komið að
starfinu með okkur á liðnum ámm. Án stuðnings og vel-
vilja fjölmargra fyrirtækja og einstaklinga á Akureyri og
nágrenni gætum við alls ekki sinnt því starfi sem við inn-
um af hendi. Okkar bestu þakkir til ykkar allra.
Gleðilega jólahátíð!