Leo - 01.12.2003, Side 10
Lionsklúbburinn HÆNGUR 30 ára
10
Afmœlisferð Lionsklúbbsins Hœngs
til Hafnarfjarðar 28. - 29. mars 2003
tutt ferðasaga
Lionsklúbburinn Hængur varð 30
ára gamall 6. mars s.l. Af þessu
tilefni var ákveðið að halda í vík-
ing til Hafnarfjarðar. Þar eiga Hængs-
menn góða vini í Lkl. Ásbirni sem
einnig eru jafnaldrar þeirra svo að-
eins munar örfáum dögum. Þess má
geta að á 25 ára afmæli klúbbanna
komu Ásbirningar í heimsókn til
Hængsmanna. Afmælisferðin var far-
in 28.-29. mars og í Hafnarfirði var
okkur tekið með kostum og kynjum.
Sérstaklega ber að þakka góðan und-
irbúning og skipulag af hálfu þeirra
Ásbiminga sem og hvatningu þeirra
til okkar um að koma.
Á föstudagskvöldið gerðu þeir fé-
lagar sem vom þá komnir til Hafnar-
fjarðar sér glaðan dag á Fjömkránni.
Á laugardaginn hófst formleg dag-
skrá kl. 11.00 með því að eiginkonur
félaga fengu snyrtivöru- og undirfata-
kynningu í Demenhams ásamt per-
sónulegri leiðsögn
svo nefndra stíl-
ista. Meðan á
þessu stóðu biður
eiginmenn hinir
þolinmóðustu á
kaffibar í nágrenn-
inu. Þegar svengd-
in var farin að
segja til sín rúm-
lega tvö, var á
snyrtilegan hátt
ýtt aðeins við þess-
um elskum og áður
en við vissum af
vorum við komin
að matborðinu á
veitingastaðunum
T.G.I. Friday’s. Allt
í einu hrukku
menn upp við að
klukkan fjögur átt-
um við að vera
komin í móttöku
hjá bæjarstjórn
Hafnarfjarðar í
Hafnarborg og var
því snögglega lok-
ið við mat og drykk
og haldið af stað í
næsta áfanga. í
Hafnarborg tóku á
móti okkur tveir
bæjarstjórar, annar
fyrrverandi bæjar-
IListasafni Hafnarfjaröar, Hafnarborg. - Magnús Gunnarsson fv. bæjarstjóri
hynnir sögu safnsins. í safninu stóð yfir sýning á verkum Louisu Mattias-
dóttur.
Steinar Björgvinsson. ræhtunarstjóri Skógrœktarfélags Hafnarfjarðar segir
sögu skógræktar við Hvaleyrarvatn.
stjóri, Magnús Gunnarsson, en hinn
núverandi bæjarstjóri, Lúðvík Geirs-
son. Eftir stutta og hnitmiðaða ræðu
Lúðvíks (en hann var með tvær mót-
tökur í húsinu) þar sem hann bauð
gesti velkomna og að þiggja veitingar
í boði bæjarins tók fyrrverandi bæjar-
stjóri og Lionsfélagi í Ásbimi við að
sýna okkur Hafnarborg og þær sýn-
ingar sem þar vom í boði. Mikla
Ami V. Friðriksson flytur brot úr sögu Hœngs.
ánægju og athygli vakti sýning á
verkum Louisu Mattíasdóttur. í öðr-
um sal hússins var sýning á nýrri
verkum og meðal þess sem þar var að
sjá var plasthrúgald mikið og að sögn
Magnúsar vom menn ekki alveg klár-
ir á því hvort þetta væri listaverk eða
aðeins plastið utan af listaverkunum.
Alltént hafði enginn þorað að eiga við
plastvöndulinn. Eftir góðar veitingar í
listasafninu var haldið út í rútu eina
allmikla að vöxtum og vel búna. í
vesturhluta hennar var skeifulaga
sófi í kringum borð þannig útbúið að
þar mátti af öryggi varðveita þær
guðaveigar sem félagar vorir skenktu
okkur þegar inn var komið. Var nú
ekið sem leið lá um eldri hluta Hafn-