Íslenskt mál og almenn málfræði


Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2003, Page 178

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2003, Page 178
176 Ritfregnir Leiðbeiningar og bankastarfsemi Ingibjörg Axelsdóttir og Þórunn Blöndal. 2002. Handbók um ritun og frágang. 7. útgáfa. Iðunn, Reykjavík. 121 bls. Orðabanki íslenskrar málstöðvar, http://www.ismal.bi.is/ob/ Málfarsbanki fslenskrar málstöðvar, http://www.ismal.hi.is/malfar/ Ingibjörg og Þórunn gáfu handbók sína fyrst út árið 1988 og sú staðreynd að nú er komin sjöunda útgáfa af henni sýnir að henni hefur verið tekið vel, enda er fyllsta ástæða til. Höfundar hafa líklega upphaflega séð þörfina fyrir Handbókina í störfum sínum sem kennarar og sumt í efnisþáttum hennar og efnistökum virðist ennþá eink- um ætlað skólafólki. I formála segir líka að bókin hafi verið „notuð víða í framhalds- skólum og háskólum auk þess sem hún hefur verið notuð á námskeiðum um ritun og frágang efnis“. En vegna þess að bókin er að verulegu leyti sett fram í handbókarformi getur hún nýst hvetjum sem er. Það á einkum við síðustu kaflana, en þeir fjalla m.a. um skammstafanir og greinarmerki, ólíkar gerðir heimilda, tilvitnanir og tilvísanir í heimildir og heimildaskráningu. Þar eru mjög fjölbreytt og gagnleg dæmi — reyndar enn fleiri en áður. í þessari nýjustu útgáfu hefur líka verið bætt inn þörfum ábending- um um meðferð heimilda af Netinu og mat á þeim. Þetta gerir bókina nánast ómiss- andi handbók fyrir þá sem fást við hvers konar ritstörf og frágang texta. Orðabankinn hefur verið starfandi (eða opinn) síðan 1997 á vegum Islenskrar mál- stöðvar en þá hafði undirbúningurinn staðið alllengi. Mikið munaði um styrki frá Lýðveldissjóði, Málræktarsjóði og Mjólkursamsölunni á lokasprettinum. Sum orðasöfnin sem bankinn hann geymir standa á býsna gömlum merg. I hon- um eru nú yfir 40 orðasöfn sem varða eftirtalin svið: bfla, byggingarlist, eðlisfræði, efnafræði, endurskoðun, erfðafræði, flug, fundi, gjaldmiðla, hagfræði, háplöntur, iðjuþjálfun, jarðfræði, landfræði, líffræði, lækn- isfræði, mat, málffæði, málmiðnað, nytjaviði, nýyrði, ónæmisfræði, plöntuheiti, raftækni, ríkjaheiti, sálarfræði, sjávardýr, sjávarútvegsmál, sjómennsku, stjóm- málafræði, stjómsýslu, stjömufræði, timbur, tækni, tölfræði, tölvur, umhverfis- fræði, uppeldisfræði, upplýsingafræði, veður, verkefnastjómun, vélfræði, þýð- ingafræði Af þessari upptalningu má sjá að efnið er ótrúlega fjölbreytt. Orðasöfnin era af ýms- um gerðum og á ólíku vinnslustigi. Sum innihalda erlendar samsvaranir fræðiheita en önnur ekki, sum era nánast fullunnin en önnur á vinnslustigi. Þrátt fyrir þetta eru þau öll gagnleg í núverandi formi og óhætt að hvetja alla til að nýta sér þau. Nú mun vera unnið að því að gera orðasöfnin aðgengilegri og nýtanlegii fyrir þá sem áhuga og þörf hafa á, m.a. með stuðningi frá tungutækniverkefni Menntamálaráðuneytisins. Málfarsbankinn er aftur á móti meiri nýjung í starfi Málstöðvarinnar, en hann var formlega opnaður 30. maí 2002. Málstöðin hafði m.a. notið styrkja úr Lýðveldissjóði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.