Íslenzk tunga - 01.01.1964, Síða 149
TVO HANDRITSBROT
147
í einstaka stafsetningaratriöum er þó munur á XXXIII og þeim
hluta nr. X, er B hefur ritað:
1) í XXXIII kemur kringt ‘r’ fyrir á eftir ‘d’ (sgldr 3). Hins veg-
ar er venjulegt ‘r’ notað t. d. í reyndr 20. Það kann því að vera til-
viljun, að kringt ‘r’ kemur aðeins fyrir á eftir ‘o’ hjá X B.
2) Oft er ritað ‘zs’ í XXXIII, bæði í enda orðs, t. d. allzs 4, vazs
6 (en vatsÍNs 28), gerþizs 10, hrazs 21, fÍNÍzs 25, og inni í orði, t. d.
illzsco 2r7, blezsaþv 2vl5. En hjá X B kemur þessi ritháttur ekki fyrir
(sbr. t. d. veriaz 18, stígaz 21, vorþvz 23).
Ekki raska þessi atriði þó þeirri meginniðurstöðu þessa kafla, að
höndin á XXXIII og X B sé ein og hin sama. Fyrra atriðið gæti ver-
ið tilviljun, eins og að var vikið, og síðara atriðið kann að eiga rót
sína að rekja til mismunandi stafsetningar ólíkra forrita.
IV
Sú spurning hlýtur að vakna að lokum, hvort bæði þessi brot, nr.
X og XXXIII, séu úr einni og sömu bók. Vel má vera, að svo sé, en
ekki verða leiddar að því eins sterkar líkur og æskilegt væri, einkum
vegna þess, hversu illa brotin eru varðveitt og hve sködduð þau
eru nú.
SíÖara blaðiö í nr. X er skorið þannig kjalar megin, að fyrstu
stafina vantar í hverja línu á forsíðu, en síðustu stafina á baksíðu.
Einnig er blaöiÖ skorið bæði að ofan og neðan. Fyrra blaðið er og
skorið bæði að ofan og neöan. En á hliðum er það sennilega ekki
skorið, en skinniö er mjög illa fariö af fúa kjalar megin. Upphafleg
stærð hlaðanna verður því ekki ákveðin með nákvæmni.
Bæði blöðin í nr. XXXIII eru skorin að neðan, en ekki á hliöum;
skinnið er lítið eitt skemmt af fúa kjalar megin. Breidd blaðanna
er nú frá 18.2—18.9 cm. Mest hæð fyrra blaðsins er 21.1 cm., hins
síðara 20.6.
A báðum blöðunum í XXXIII eru nú 34 línur á síðu. Hliðstæður
texti sýnir, að neðst á forsíöu síðara blaÖsins (þ. e. milli forsíðu
og baksíðu eins og þær eru nú) vantar sennilega 6—7 línur. Hafa