Reykvíkingur - 09.11.1928, Síða 16

Reykvíkingur - 09.11.1928, Síða 16
712 REYKVIKINGUR Ofngmæli. Mörg orö, sem notuð eru í dag- legu máli bæði hár og erlendis eru nokkuð skringileg að þvi leyti að þau eiga alls ekki við þar sem þau eru notuð. Þannig er tal- að um „Brysselíeppi'*, en þ'au eru búin til í Kiddminster á Eng- landi (sá bær er frægur síðan á miðöldum, fyrir ábreiðuvefr.að). „Tyrknesk böð ‘ eru með öllu ó- þekt í Tyrklandi. Mestur hlut'nn af „Egypzkum vindl ngurn'* kem- ur frá Tyrldandi, því á Egypta- landi er mjög lítið ræktað af tó- baksjurt. Á eyjunni Kúba (þar er Havanna höfuðborgin) væri ó- mögulegt að framleiða alla þá „Havannavindla" sem seldir eru út um heiminn. Fiest „svissnesku úrin“ eru búin til í Ameriku, og færeysku peysurnar eru alstaöar nema hér og í Færeyjum kallaðar „íslenzkar peysur'*. Hjá hörmang- ara einum í Kaupmannahöfn májtti lesa í glugga: Egta norskur BíQdudals-saltfiskur. Vínarbrauð hvað alls ekki fást í Vínarborg og franskbrauðin eru eins og kunn- ugt er, ekki mjög frönsk og svona mætti halda lengi áfram að telja upp, ÚRIN BEZT HJÁ GUÐNA ÚRIN ÖDÝRUST HJÁ GUÐNA KAUPjÐ ÚR HJÁ GUÐNA Hver sendi símskeytið. ) Lögreglan í Karlskrona hefir nú um nokkurn tíma verið að fást við einkennilegt mál. Hinn 29. ágúst kom símskeyt á símastöðina í Kk, stOað t:l flota- foringjans þar. Skeytið var frá tveim kennurum við undirfor- ingjaskólann, og afturkölluðu þeir þar umsóknir um kennarastöðu við skólanm. Það kom þó fljótlega í ljós, að þessir tveir menn höfðu aldrei sent þessi skeyti, og aldrei dottið i hug að afturkal’a umsöknir sín- ar, þar sem þeir voru þegar búnir að fá tilkynningu um vei ingu ó embættunum. En flotamálastjór- inn réði aðm kenmara undir eins og hann fékk símskeytið, og voru þeir fyrjr, þegar þessir umgetnu komu og ætluðu að fara að byrja kenzlu. Lögreglan hefir ekki uppgötv- að mikið í málinu enn þá, að eins hefir það orð;ð uppvist, að dreng- ur kom á stöðina með skeytim- En miklum verðlaunum hefir ver- ,lð heitið í því skyni að hafa upp á hinum seka.

x

Reykvíkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.