Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.01.1916, Blaðsíða 5
Störf Verkfræðingafjelags íslands 1915 0. fl.
1. Fnndarhöld.
21. fundur Verkfræðingafjelagsins var lialdinn á
Hótel Reykjavík þriðjudaginn 19. janúar 1915. For-
maður stýrði fundinum. Frumvarp til reglna um
gerðardóm V. F. í. lá fyrir; var vísað til 2. um-
ræðu. Því næst flutti Jón Þorláksson erindi
um vegi á íslandi. Erindið er prentað hér aftar,
einnig í enskri þj'ðingu. 11 félagsmenn voru við-
staddir.
22. fundur, sem var aðalfundur, var haldinn á
Hótel . Reykjavik þriðjudaginn 16. febrúar 1915. Var
Á s g e i r Torfason kosinn fundarstjóri.
1. Formaður gaf skýrslu um störf fjelagsins á
árinu 1914.
2. Gjaldkeri lagði fram endurskoðaðan reikn-
ing. Tekjurnar höfðu verið :
Tillög félagsmanna.................kr. 290,00
Tekjur af ársritinu..................— 153,50
Ýmsar tekjur.........................— 12,81
í sjóði 1. jan. 1914 ................— 292,16
Samtals kr. 748,47
En útgjöldin:
Kostnaðaur við fundarhöld . . kr. 57,30
-----— ársritið ... — 402,10
Ýmisleg útgjöld................— 28,93
í sjóði 31. des. 1914..........— 260,14
Samtals kr. 748,47
Reikningurinn var samþyktur.
3. P . S m i t li gekk úr stjórninni, en var end-
urkosinn.
4. Endurskoðendur, S i g . T li o r o d d s e n og
Geir Zoega, voru endurkosnir.
5. Til annarar umræðu var frumvarp til reglna
um gerðardóm, og var því vísað til 3. umræðu.
Á fundi voru 10 fjelagsmenn.
23. fundur var haldinn á Hótel Reykjavík föstu-
daginn 12. marz 1915. Varaformaður stýrði fundin-
um. Til 3. umræðu var frumvarp til reglna um
gerðardóm, sem var samþykt með nokkrum breyt-
ingum. Það er prentað hjer aftar, eins og það var
samþykt. Því næst llutli dr. phil. G u ð m u n d u r
Finnbogason fyrirlestur um »vinnuvísindi«, og
urðu nokkrar umræður á eftir. Fyrirlesturinn hefur
seinna verið prentaður í »Vit og strit«.
24. fundur var haldinn fimtudaginn 22. apríl
1915. Fóru 10 fjelagsmenn um borð í björgunar-
skipið »Geir« og skoðuðu áhöld og útbúnað skips-
ins. Síðan var haldið til Ilótel Reykjavíkur.
25. fundur var haldinn á vitamálaskrifstofunni
miðvikudaginn. 3. nóvember 1915. Skýrsla sements-
nefndarinnar lá fyrir til umræðu, ásamt frumvarpi
til reglna um sölu og prófun Portland-sements. Mál-
inu var vísað til annarar umræðu. Við umræðu
málsins voru lagðar fram skýrslur um prófun á
styrkleilca sementsteypu úr nokkrum tegundum inn-
lendra steypuefna, og hefur hafnargerð Reykjavikur
látið gera þær rannsóknir hjá Statspröve-anstalten
og V. Stein í Kaupmannahöfn. Skýrslur þessar eru
prentaðar hjer aftar í íslenskri þýðingu. Þar sem
árangurinn af þessum rannsóknum þótti að ýmsu
leyti varhugaverður, samþykti fundurinn að fela
sementsnefndinni að íhuga, livort ekki væri ástæða
til að fjelagið gengist fyrir því, að innlend stej'pu-
efni væri frekar rannsökuð, og að koma fram með
lillögur um, á hvern hátt því yrði komið í verk.
7 fjelagsmenn voru á fundinum.
26. fundur var haldinn á vitamálaskrifslofunni
fimtudaginn 25. nóvember 1915. Til annarar um-
ræðu var frumvarp til reglna um sölu og prófun
Portland-sements. Var því eftir nokkrar umræður
vísað til 3. umræðu. Því næst hjelt Ó1 a f u r
Þorsteinsson fyrirleslur um mælingu Reykja-