Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
27
benda ákveðið til þess, að rauðir hundar geti undir viss-
um kringumstæðum haft hinar örlagaríkustu afleiðingar.
Prekari rannsóknir á þessu sviði geta haft mikla þýðingu
fyrir ljósmóðurfræðina í framtíðinni.
Árið 1940 varð ástralskur læknir, Gregg að nafni, var
við einkennilega mörg tilfelli af meðfæddri blindu hjá ný-
fæddum börnum. Á skömmum tíma fæddust þannig 13
börn. Þegar Gregg fór að athuga þetta nánar, kom í ljós,
að hér var um meðfædda starblindu að ræða og mæðurn-
ar höfðu svo að segja allar veikzt af hitasótt á meðgöngu-
tímanum. Veiki þessari fylgdu útþot á hörundi og þroti
í eitlum. Læknar töldu þetta vera rauða hunda. Gregg
varð nú fyrstur manna til að safna skýrslum um þetta.
Segir frá 58 konum, sem eignuðust blind börn. Flest þeirra,
eða 44, höfðu einnig skemdir í hjartalokum. Mörg þeirra
voru neðan við meðal þyngd og tóku lélegum framförum.
Þessar merkilegu athuganir leiddu til þess, að ástralskir
læknar voru hvattir til að gefa skýrslur um allar vanfærar
konur, sem fengu bráða hitasótt með útþotum. Athuganir
á þessum skýrslum leiddu eftirfarandi atriði í ljós: Rauð-
ir hundar á tveim fyrstu mánuðum meðgöngunnar leiddu
svo að segja undantekningarlaust til meðfædds vanskapn-
aðar hjá barninu. Ef konan sýktist á þriðja mánuðinum,
reyndist helmingur barnanna vanskapaður. Eftir það virt-
ist sjúkdómurinn ekki hafa nein skaðleg áhrif á barnið.
Þessum eftirtektarverðu athugunum ástralíulæknanna
var í fyrstu tekið með nokkurri tortryggni. Ef þetta var
rétt, var næsta ólíklegt, að menn hefðu ekki veitt því
eftirtekt fyrir löngu. Þótti því hugsanlegt, að um annan
sjúkdóm en rauða hunda væri hér að ræða. En brátt tóku
að berast skýrslur frá öðrum löndum um vansköpuð börn
hjá konum, sem fengið höfðu rauða hunda á meðgöngu-
tímanum. Auðvitað var ekki hægt að sanna, að rauðir
hundar voru beinlínis orsök þessa, en þegar skýrslur yfir
300 vansköpuð börn frá ýmsum löndum sýndu, að 97 af