Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 13
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
35
ur og ungbörn. I fæðingardeildunum var gert ráð fyrir
500—1000 sængurkonum árlega og þótti hæfilegt að ætla
hverri ljósmóður, sem þar starfaði ca. 200 fæðingar á
ári. Til viðbótar var talið æskilegt, að komið yrði á fót
litlum fæðingarheimilum, sem læknar fæðingardeildanna
hefðu umsjón með, enda yrði keppt að því, svo sem
auðið væri, að góð samvinna ætti sér stað meðal lækna og
Ijósmæðra svo og meðal hinna ýmsu stofnana, sem fæðing-
arhjálp annast. Einnig taldi nefndin aðkallandi að samin
yrði ný reglugerð fyrir ljósmæður landsins, m. a. til þess
að taka af öll tvímæli um það, hvenær þær eigi að leita
læknis. Æskilegt væri að komið yrði á námskeiðum, sem
ljósmæðrum sé gert að skyldu að sækja.
Starf ljósmæðra er mjög mikilvægur þáttur í fæðingar-
hjálpinni. Það er því illa farið, að nú er að verða hörgull
á þeim í landinu, svo að það hefur jafnvel komið til mála að
loka verði fæðingardeildum af þeim orsökum.
Það verður því að vinda bráðan bug að því að bæta kjör
þeirra t. d. með því að skipta umdæmunum réttilega og
hækka launin, svo starfið verði lífvænlegt og eftirsóknar-
vert.
(Lauslega þýtt úr „Jordemoderen").
Bréf hefur stjórninni borizt frá sambandi finnskra ljós-
mæðrafélaga, þar sem íslenzkum ljósmæðrum er boðið að
sitja mót sambandsins í Helsingfors dagana 17.—19. júní.
Bréfið barst ekki fyrr en síðasta tbl. var fullprentað.
Ljósmæðrum í Reykjavík var skýrt frá heimboðinu, en
engin sá sér fært að þiggja það, enda tími of stuttur til
stefnu.