Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Page 6

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Page 6
28 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ hverjum 100 voru börn mæðra, sem fengið höfðu rauða hunda fyrstu þrjá mánuði meðgöngunnar, gat varla ver- ið um hreina tilviljun að ræða. Ef rauðir hundar ættu enga sök á þessu, ættu vansköpuð börn ekki frekar að fæðast af konum, sem veikjast fyrstu mánuðina en hin- um, sem sýkjast síðar á meðgöngutímanum. Ekki er ennþá hægt að segja, að fullar sannanir séu fengnar fyrir því, að samband sé á milli rauðra hunda og vanskapaðra barna, en miklar líkur eru þó fyrir því, að um slíkt samband sé að ræða. Auk þess er það rökrétt ályktun. Talið er, að rauðir hundar stafi af virus. Kunnugt er, að virus, sem annars er erfitt að rækta á venjulegan hátt, vex mjög vel í fósturvefjum. Ennfremur vita menn nú, út frá þeirri þekkingu, sem fengin er um myndun fóstursins, að þau líffæri þess, sem verða fyrir skemmdum við rauða hunda, eru einmitt þau líffæri, sem þroskast fyrstu þrjá mánuðina. Eftir þeim skýrslum, sem nú þegar liggja fyrir (þar af eru tvö tilfelli frá Svíþjóð og sex frá hinum Norður- löndunum), ætti að mega búast við einhverjum þessara einkenna hjá börnum þeirra kvenna, sem sýkjast af rauð- um hundum um meðgöngutímann: Lítil fæðingarþyngd, meðfæddur hjartagalli, meðfætt heyrnarleysi og andleg- ur vanþroski. Ef frekari rannsóknir eiga eftir að staðfesta þá kenn- ingu, að rauðir hundar í byrjun meðgöngunnar hafi svona örlagaríkar afleiðingar, kemur blátt áfram til álita, hvort ekki sé rétt að losa þessar konur við fóstrið. Þetta er þó ekki heimilt lögum samkvæmt í sjálfu sér. Þar segir, að binda megi endi á meðgönguna, ef gera megi ráð fyrir að barnið fæðist með alvarlegan arfgengan (auðk. af höf.) sjúkdóm eða líkamslýsi. Ef til vill mætti ,,arfgengur“ falla burtu? Betri lausn væri þó, ef takast mætti að gera allar kon- ur ónæmar fyrir rauðum hundum áður en þær eru af

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.