Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Síða 7

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Síða 7
LJÓSMÆÐR ABL AÐIÐ 29 æskuskeiði. Þær konur, sem einu sinni hafa fengið rauða hunda, eru ónæmar fyrir þeim ævilangt og þurfa því ekk- ert að óttast. Hinar ætti að mega gera ónæmar með al- mennri bólusetningu í skólunum, ef hægt væri að finna hagkvæma og örugga aðferð til þess. Eins og nú' standa sakir, er þýðingarmikið, að allar konur, sem sýkjast af hitasótt með útþotum á hörundi fyrstu mánuði meðgöngunnar, leiti til læknis, svo hægt sé að greina sjúkdóminn. Auðvitað má þó ekki gera kon- una hrædda með því að segja henni allt, sem læknirinn kann að vita um sambandið milli rauðra hunda og van- skapaðra barna. I þessu sambandi er ekki úr vegi að minnast lauslega á helztu sjúdómseinkenni rauðu hundanna. Meðgöngutími veikinnar er 2—3 vikur. Fyrirvaralaust og svo að segja samtímis fer að bera á kvefi, hósta, lágum sótthita og útþotum á hörundinu. Það eru ljósrauðir kringlóttir eða aflangir flekkir, meira eða minna upphleyptir, á stærð við títuprjónshöfuð eða baun og sitja í andliti, bol og útlimum. Blettirnir eru vanalega aðgreindir hver frá öðr- um, en geta þó runnið saman, einkum í andliti, svo að sjúklingurinn er eins og veðurbarinn. Eigi maður að vera viss um, að um rauða hunda sé að ræða, verður enn eitt sérkenni sjúkdómsins að koma í ljós, en það eru bólgnir eitlar í hnakka og aftan við eyrun. Veikin varir stutt. Eftir 3 daga iækkar hitinn og útþotin hverfa. Þýtt úr ,,Jodremoderen“ af Jóni Nikulássyni lœkni.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.