Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Page 8

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Page 8
30 LJÖSMÆÐRABLAÐIÐ Fágœtt þrekvirki tjósmóðurinnar í Bárðardal. [Grein þessi, sem hér er nokkuð stytt, birtist í „Tímanum" 30. apríl s.l., og um líkt leyti var þessa atburðar einnig getið í útvarpinu. Þar sem telja má fullvíst, að þessi saga rifji upp fyrir sumum les- endum Ljósmæðrablaðsins, einkum eldri ljósmæðrum, ýmis atvik úr þeirra eigin starfi og svaðilförum, er þeirri áskorun hér með beint til allra ljósmæðra, sem slíkar endurminningar eiga, að færa þær í letur og senda Ljósmæðrablaðinu til birtingar sem allra fyrst]. Ljósmóðirin í Bárðardal, Kristlaug Tryggvadóttir, býr á Halldórsstöðum, sem er næstfremsti bærinn í dalnum að vestanverðu við Skjálfandafljót. Er þar höfð bátferja á fljótinu, og er báturinn að vestan. Fljótið er þó allbreitt þarna og nokkuð straumhart, svo að töluverðan knáleik þarf til að róa þar yfir án þess mikið hreki af leið, en það getur verið hættulegt, þar sem þrengsli og flúðir eru í fljótinu eigi alllangt neðar. Skammt neðan við ferjustaðinn er allmikill strengur, sem lífshætta er að lenda í, og má lítið hrekja til þess, að svo geti farið. Hinn 15. apríl bar svo við, að konan í Engidal, Sigur- drifa Tryggvadóttir, tók léttasótt, og var þegar farið að vitja ljósmóður eins og lög gera ráð fyrir. Engidalur er austan Skjálfandafljóts, nokkuð uppi á heiðinni. Sími er á öllum bæjum í Bárðardal, og var þegar símað til Krist- laugar ljósmóður á Halldórsstöðum, og hún beðin að koma á móti til þess að flýta fyrir. Á Halldórsstöðum búa þau hjónin Kristlaug og maður hennar ein með barnahóp. Bónd- inn var ekki staddur heima við, og varð ljósmóðirin því að fara frá börnum sínum, en sum þeirra eru stálpuð. Ofsarok var þennan dag, og þar sem engin brú er þarna á fljótinu,

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.