Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Síða 9
LJÓSMÆÐR ABL AÐIÐ
31
var ekki um annað að gera en nota ferjuna, eða fara yfir
fljótið á hesti.
Kristlaug tók þann kostinn að róa yfir fljótið. Hratt
hún bátnum á flot og réri ein yfir, og tókst það giftusam-
lega, þrátt fyrir hvassviðrið og nokkurn voxt í fljótinu.
Má það teljast þrekvirki af konu, því að mikinn kjark og
áræði hefur þurft til. Kristlaug komst síðan að Engidal
og gekk fæðingin að óskum. Barnið fæddist aðeins hálfri
stundu eftir komu ljósmóðurinnar, svo að ekki hefir
miklu mátt muna, að hún næði í tæka tíð.
Kristlaug Tryggvadóttir ljósmóðir er 48 að aldri. Hún
er frábær myndarkona, örugg, kjarkmikil og úrræðagóð.
Þegar hún hefir þurft að fara til sængurkvenna í dalnum
að undanförnu, hefir bóndi hennar og börn orðið að búa
ein, þar sem stúlku hefir ekki verið hægt að fá.
Þetta dæmi er talandi tákn erfiðleikanna, sem margt
sveitafólk á við að búa vegna fólksfæðar og samgöngu-
leysis, en jafnframt órækt vitni um hetjuskap og þraut-
seigju, sem býr með fólkinu í byggðum landsins, jafnt
konum sem körlum.
Frá námi og starfi
Ijósmœðra.
Holland.
Yfirljósmóðirin við fæðingardeildina í Rotterdam, Annie
G. de Hondt, tók sér ferð á hendur til Danmerkur og Sví-
þjóðar til þess að kynnast námi og starfi ljósmæðra í þess-
um löndum.