Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Page 12

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1948, Page 12
34 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Námstími ljósmæðra er þrjú ár. Fyrst læra þær hjúkr- un á sjúkrahúsi á 1 ár og eru að því loknu 2 ár á ljós- mæðraskóla. Þær mega ekki nota tengur eða önnur lækna- áhöld, en hafa aftur á móti leyfi til að gera vendingu á barni, losa fasta fylgju og því um líkt. Hríðameðul mega þær ekki nota upp á eigin spýtur. — Þær geta sjálfar starfrækt fæðingarheimili og eru einráðar um, hvort þær hafa lækni sér til aðstoðar við fæðingarnar, og það, þótt um langar og erfiðar fæðingar sé að ræða. Eftirlit með heimilum þessum er lítið og óviðunandi. Læknarnir njóta oftast ónógrar kennslu í fæðingar- hjálp. Flestir þeirra hafa t. d. aldrei fengið að taka barn með töng, meðan á náminu stendur og eru því ekki upp á marga fiska, þegar þeir neyðast til að grípa til hennar í fyrsta sinn við barnsburð, enda ekki óalgengt, að þeir sendi konur á spítala, þar sem tangarhjálp er í vændum. Hvað ljósmæðurnar snertir, er þar auðvitað misjafn sauður í mörgu fé. Sumar þeirra, einkum þær, sem orðn- ar eru aldurhnignar, fylgja úreltum aðferðum í öllu er að sótthreinsun lýtur og ráðast í aðgerðir, sem eru fyrir utan þeirra verkahring. Auðvitað hafa þær oft þá afsök- um, að þær eiga ekki völ á öðru en ungum og óreyndum læknum og finna, að þær geta sjálfar eins vel — eða betur — ráðið úr vandanum. Auk þess hafa læknarnir svo margvíslegum störfum að gegna, að þeir hafa ekki tíma til að ferðast langar leiðir og bíða hálf eða heil dægur eftir barnsfæðingu. Þetta er þó viðsjárvert ástand, sem brýna nauðsyn ber til, að ráðin verði bót á. Nefnd var skipuð til að íhuga, hvernig helzt yrði bætt úr því, er miður þótti fara í málefnum ljósmæðranna og öllu, er að fæðingarhjálp lýtur. Nefndin mælti með því, að sett verði á stofn sjúkrahús, þar sem þeirra er þörf með kvensjúkdóma- og fæðingardeildum undir yfirstjórn sér- fræðinga í þessum greinum. I sambandi við þau séu m. a. starfræktar heilsuverndarstöðvar fyrir barnshafandi kon-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.