Ljósmæðrablaðið - 01.07.1967, Page 3
Pétur H. Jakobsson yfirlæknir:
Léttasótt og sóttleysi
Niðurlag
Notkun hríðaukandi lyf ja og samdráttarlyf ja
á þriðja stigi fæðingar.
Á þriðja stigi fæðingar er ekki að óttast líf barnsins
og ekki heldur legbrest og því eru þessi lyf gefin í öðrum
skömmtum á þessu stigi. Víðast hvar er það orðin sjálf-
sögð regla við fæðingar að gefa hríðaukandi lyf í æð
móðurinnar, um leið og fremri öxlin fæðist. Gefnar eru
tvær til fimm einingar af syntocinon eða pitocin, en í þessu
skyni má einnig gefa secale-lyfin. Af þeim er um að ræða
ergometrin eða methergin, og er methergin um helmingi
sterkara, og helzt krampasamdráttur legsins þess vegna
lengur, ef það er notað.
Við venjulegar fæðingar er sennilega ekki mikið atriði,
hvert þessara lyfja er notað, en hafi fæðingin verið lang-
dregin og hríðir linar og sérstaklega hafi verið nauðsjm-
legt að binda enda á fæðinguna með aðgerð, er mikið at-
riði, að legið linist ekki aftur upp og konan fái eftirblæð-
ingu. Hægt er að endurtaka methergingjöf og þá í vöðv-
ann, en stundum er þrálátt samdráttarleysi í leginu, og