Ljósmæðrablaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 13
LJ ÓSMÆÐR ABLAÐIÐ
157
1777 nýfædd börn úr Keykjavík voru tilkynnt á árinu.
859 voru fædd í Landspítalanum.
799 — — - Fæðingarheimili Reykjavíkur.
11 — — - Sólvangi í Hafnarfirði.
54 — — - Fæðingarheimili Guðrúnar Halldórsd.
54 — — - heimahúsum.
Mæðradeild. Á deildina komu alls 2600 konur, en tala
skoðana var 11215. 1975 konur voru búsettar í Reykjavík,
en 625 utan Reykjavíkur.
Barnaveiki. Árið 1953 dó einn sjúklingur úr barnaveiki.
Ekkert tilfelli skráð síðan.
Blöðrubóla ungbama (pemphigus neonatorum). 27
sjúklingar eru skráðir árið 1962 og er veikin nú á far-
sóttarskrá í fyrsta sinni og skráð í 10 héruðum.
Rauðir hundar. 125 sjúklingar skráðir árið 1962.
Einn sjúklingur var skráður með geitur árið 1957, eng-
inn síðan. Yfirleitt eru heilbrigðisskýrslur ekki taldar
skemmtilestur, en ekki eru þar einungis þurrar tölur,
sem sjá má af því síðasta, sem hér verður birt — and-
varpi frá héraðslækninum á Hofsósi.
Hofsós. Illa gengur að útrýma lús. Einstaka persónur
og einstök heimili halda henni við og rækta. Afskipti af
þessum ófögnuði eru af sumum talin rætni og óþörf af-
skiptasemi, og vilja þeir hinir sömu fá að hafa sínar lýs
í friði.
Sjálfsathugun á brjóstum
Reynslan hefur sýnt, að konur geta sjálfar fundið mjög
smáa hnúta í brjóstum sínum. Því er æskilegt, að konur
í þeim aldursflokkum, þar sem krabbamein í brjósti er al-
gengast, læri að rannsaka brjóst sín til þess að flýta