Ljósmæðrablaðið - 01.07.1967, Síða 16
160
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Hér birtist einnig tafla um tíu algengustu staðsetningar
krabbameina samkv. krabbameinsskráningu hérlendis ár-
in 1955-1959.
K o n u r Nr. Staðsetning Hundraðstala K a r 1 a r Staðsetning Hundraðstala
1. Brjóst 18,09 Magi 35,55
2. Magi 16,67 Blöðruhálskirtill 8,36
3. Legháls 7,66 Húð 6,67
4. Eggjakerfi Lungu 4,86
Eggjaleiðari 6,20 Hvítblæði 4,18
5. Ristill 5,40 Ristill 3,73
6. Húð 5,01 Taugakerfi 3,73
7. Taugakerfi 3,83 Nýra, þvagleiðari 3,73
8. Endaþarmur 3,71 Vélindi 3,62
9. Nýra, þvagleiðari 3,49 Blaðra, Þvagrás 3,05
10. Skjaldkirtill 3,26
k*>(*>i*)i*>i*>(*)(*>i*>i*ii*)í*)i*>i*>i*i(*>(*>i*>i*>i*ii*>(*ii*>(*>i*)(*ií*>(*>!*)(*ii*>i*>i*>*>i*>iS>i*>i*>í*ii*ii*>i*>i*>i*>!*>í*ii*!A
ÞYNGD
Almennur áhugi er nú ríkjandi á næringarvandamálum
þjóða og einstaklinga, og má segja að þar skipti í tvö
horn, þeir sem ekki þjást af offitu þjást af hungri. Rit-
stjóra bárust í hendur leiðbeiningartölur um heppilegan
líkamsþunga karla og kvenna, ásamt nokkrum almennum
athugasemdum um þetta efni og var efni þetta yfirlesið
og samþykkt af norska landslækninum. Þar stendur m.a.:
Bf menn vilja lifa lengi og vel er heppilegast að líkams-
þungi svari til hæðar. Venjan er sú að ungt fólk vill vera
grannt en þeir eldri láta eftir sér að vera í góðum hold-
um. Þetta ætti að vera öfugt. Það er langtum meiri þörf
á að vera grannur eftir þrítugt en fyrir. Þeir, sem eru