Freyr - 01.02.1911, Side 3
Fjárkláðinn.
Eftir
Magnús Einarsson, dýralækni.
n.
Orsök kláðans eru maurar og eru þeir
þrenskonar, sem valdið geta kláða á fé:
1. Graimaurinn (sarcoptes ovis). '
2. Nagmaurinn (dermatophagus ovis) og
3. Sogmaurinn (dermatocoptes ovis).
Grafmaurinn er minstur (*/5—‘/a ram0 °g
tekur nafn af þvi að hann grefur sér ganga
niðri í húðinni og lifir þar. Hánn heldur sig
nær eingöngu á höiðinu á sauðfé og veldur höf-
uðkláða, en óþektur er hann hér á landi að þvi
er eg beztveit. Samskonar maur veldur manna*
kláða ■— Sarcoptes scabiei hominis.
Nagmaurinn er ögn stærri (8/10—-7» mm.)
og nefnist svo af þvi að hann nagar yfirborð
húðarinnar. Hann heldur sig aðallega á fót-
unum, veldur fótakláða., en færist þó stundum
upp á kviðinn. Er til hér á landi („félagsmaur11
Myklestads), en sjaldgæfur mun hann vera, og
fénu ekki hættulegur.
Sogmaurinn er stærstur (l/2—4/5 mm.) og
hefst við eins og nagmaurinn á yfirborði húð-
arinnar, lielzt -þar sem kindin er loðnust, og
lifir af blóði og blóðvatni, er hann sýgur úr
húðinni með munntólum sínum, sem bæði eru
löng og hvöss. Þessi tegund veldur hinum
vanalega íjárkláða og er því maurinn alment
nefndur fjárkláðamaurinn eða aðeins kláða-
niaurinn.
AUar þessar þrjár tegundir eru hver aun-
ari ólíkar og auðvelt að þekkja þær að í
smásjá.
í þessu sambandi get eg ekki leitt hjá
mér að minnast á grein eftir kláðafræðinginn
Myklestad í 28. nr. „Norðra“ 1906; segir hann
þar: „Dermatocoptes, eða sem þessi maurateg-
und líka er kölluð Dermatodectes, er liin einasta,
sem menn vita að geti sezt á fé ög unnið því
skaða*). Gfeitur geta að vfsu fært Sarcoptes-
maur ijfir á sauðfé, en vilji það til, deyr féð inn-
an skamms.*)
Þegar hr. Myklestad skrifaði þetta, var
hann nýbúinn að finna „félagsmaurinn11 og ný-
búinn að gleyma honum aftur, því áð ekki mun
hann fá neinn mann til að trúa þvi, að sá maur
só að ósekju á fénu eða geti ekki unnið þvi
ekaða. Og að Sarcoptesmaurinn sé ósaknæm-
ur fénu, kemur ekki sem bezt beim við það, að
féð deyr innan skamms eftir að sá maur er
kominn á það! — Ef það hefði ekki verið sið-
ur hér á landi að taka allar kenningar hr.
Myklestads trúanlegar í blindni, er eg hrædd-
ur um að þessi og ýmsar aðrar hetðu sezt sum-
um áhangendum hans fyrir brjóstið — í öllu
falli hinum vitmeiri. En aumt er að sjá slíkar
auðsæar vitleysur fluttar í alvöru í ísl. blöðum
og vita að þeim sé trúað af íslenzkum lesendum.
Kláðamaurinn er afarfrjósamur, líkt og á
sér stað um mörg lík lægri dýr. Kvenmaur-
*
j Leturbreytingin mín.