Freyr

Volume

Freyr - 01.02.1911, Page 6

Freyr - 01.02.1911, Page 6
20 Í'REYR. allir við böðunina, en ef baðlögurinn er í ull sauðkindarinnar 10—14 daga, þá drepast þeir. Þessvegna á að balda öllu sauðíé, sem baðað hefir verið, 8 daga inni í fjárhúsunum eftir baðið og gæta þess að sauðféð vökni eigi. Eftir 8 daga má fara að láta sauðféð út, en það verður enn að gæta þess i fulla viku, að sauðkindurnar komi eigi út í regn eða snjóhrið eða séu reknar í bleytu eða snjó.“ Eftir þessu að dæma eru maurarnir svo líf- segir, að 10 mínútna vist niðri í 5°/0 tóbaks- legi er þeim ekki nóg; til þess að vissa sé fyrir því að þeir drepist, þarf baðlögurinn að verka á þá í 10—14 daga, Og þó á tóbakið að vera bezt allra baðlyfja. Vegna þessara lífseigju mauranua á svo 8—16 daga innistað- an að vera nauðsynleg. Eg verð nú að segja það, að ef 10 mín- útna idýfing í 5°/0 ,tóbaksseyði, að viðbættum þeim tíma, sem kindin helzt blaut í húsi fullu af rennvotu fé, hefir ekki verið nægileg til þess að drepa kláðamaurana, þá hefir tóbaksbað hr. Myklestads verið alt annað en gott kláðabað. Því að ekki lifír maurinn svo lengi í almenni- legu baði. En ef baðið hefir verið gott, sem eg reyndar hefi ekki neina ástæðu til að ve- fengja, þá er það víst, að þessi langa innistaða hefir verið óþörf til þess að drepa þá maura, sem á kindinni voru, þegar baðað var. En þar með vil eg þó ekki segja að langa innistaðan hafi, eins og á stóð, verið öldungis þýðingarlaus, þótt hún hafi verið það að því leyti, sem hr. Myklestad ætlaði henni að gjöra gagn. Hún gat auðvitað ekki drepið þá maura betur, sem drepuir voru í baðinu, en hún gat haft mikil áhrif á mauraeggin eða réttara sagt ungu maurana, er þeir skriðu úr eggjunum. Eina skynsamlega hugsunin með þessari löngu innistöðu er sú, að hún gæti komið í stað seinna baðsins, og hafi það yfir höfuð tekist að lækna nokkra kláðakind til fulls með einu baði eða tvennum með 1—5 daga millibili, þá verð eg að álíta, að það sé j.essari innistöðu að þakka. í stað seinna .baðsins gat hún komið á þann hátt, að fyrir hana héldist féð vott þann tíma, sem eggin á fénu þurítu til að ungast út, svo- að ungu maurarnir dræpust jafnóðum og þeir skriðu úr eggjunum. Hinsvegar eru ekki miklar líkur til þess að baðið haldist svo lengi og vel í ullinni, að það geti drepið alla mauraungana, er þeir koma til sögunnar og sízt af öllu getur innistaðan veitt neitt svipaða tryggingu og tvenn böð með hæfi- legu millibili. Og vildu menn réttlæta þessa aðferð með því að telja henni það til ágætis, að hún sé ódýrari en tvö böð, þá hygg eg það vera hina mestu fjarstæðu, enda þótt gengið sé út. frá því, að baðið sé tóbaksbað, sem mun vera langdýrast af öllum venjulegum kláðaböð- um. Menn mega ekki gleyma þvt, að innistað- an kostar fjáreigendur talsvert fé, einkum þeg- ar baðað er að haustinu, meðan nægir eru hagar. Geri maður að kindin til jafnaðar þurfi 2 pd. af heyi á dag og pundið kosti 2 aura, þá kostar innigjöfin 4 aura á hverja kind um daginn eða 32—64 aura í 8 -16 daga, og mun- ar það því ekki litlu, hvað innistaðan verður dýrari en baðið, þótt það kosti 15 aura eða rúmlega það. En auk þess gæti farið svo, að innigjöfin yrði miklum mun dýrari ogþaðjafn- vel svó, að ekki yrði metin til peninga, ef fjár- eigendur væru illa heyjaðir og lentu fyrir inni- stöðuna í heyþrotum að vorinu til. — Eg er ekki t neinum efa um það, að bændur hefðu kosið þann kostinn 1903—1905, að borga úr eigin vösum annað baðið, ef þeir með því heíðu get- að sloppið við að gefa fénu inni í 8— 16 daga;. og þá ekki síður, et þeim hefði líka verið ljóst, að innistaðan gat ekki gjört neitt gagn í sam- anburði við annað bað eftir hæfilegan tima. Eg hefi séð þess getið til nú á seinni ár- um, að hr. Myklestad hafi hugsað sér að láta

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.