Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1933, Blaðsíða 3

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1933, Blaðsíða 3
Tím. V. F. í. 1933. 6. hefti. íslenzk byggingarlist. Nokkrar opinberar byggingar á árunum 1916 — 1934, eftir Guðjón Samúelsson, húsameistara rikisins. Austurstræti 16 — Reykjavíkur apótek. (Reykjavik Apolheke). Húsið er fyrsta stórhýsið, seni byggt var liér á landi, að undanskildu Safnahúsinu og Alþingishús- inu, og að minnsta kosti var þetta langhæsta húsið liér á landi, 4 hæðir fyrir ulan kjallara og mjög háll ris. Á 1. hæð leigði Lándsbankiim, sem j)á var hús- næðislaus eftir hrunann lí)lö, en nú er þar lyfsala. Á öðruin hæðum eru skrifstofur, nema á efslu hæð- Austurstræti 16 — Reykjavíkur apótek. Séö á norðveslurhorniÖ. (Dic Nordwcsteckc). inni (Jiakhæð); hana hafa Frímúrarar notað fyrir samkomur sínar. Húsið var byggt á fyrstu stríðsárunum, og fyrir þann líma voru steinsteypubyggingar ekki svo al- gengar sem nú. Hér var því ráði/t í mikið, að byggja stórhýsi úr steinsteypu, og þótti mörgum mikið til þess koma, þegar þelta stóra steinbákn var að rísa upp. — Um ytra útlit skal eg geta jtess, að háðumegin við Pósthússtræti og sunnan við Austurstræti hafði eg hugsað mér að turnar kæmu á hornbyggingarnar, og því gerði cg turn á liornið á þessari byggingu. Þessa turna hugsaði eg mér eins konar hlið inn í Miðbæinn. En j)\i miður hefir jiessi hugmynd ekki komi/t í framkvæmd, því að hús Jóns Þorláksson- ar, sem stendur andspænis lnisinu Austurstræti 16, Hús li.f. Eimskipafélags Islands. Götuhlið. (StraBenseite).

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.