Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Side 32
ÞÓRA STEINGRÍMSDÓTTIR, læknir, Kvennadeild, Akademíska sjúkrahúsinu
Uppsölum, Svíþjóð:
Mæíing á
Íegbotnshæð
Inngangur
Einn mikilvægasti þáttur mæðraeftir-
lits er vafalítið að uppgötva vaxtar-
seinkun fósturs í tæka tíð. Vaxtar-
seinkuð fóstur þurfa oft að fæðast fyrr
en ella og vitneskja um vaxtarseinkun
hefur áhrif á meðhöndlun móður í fæð-
ingu. Mörg þeirra barna, sem fæðast
andvana, með og án sýnilegra orsaka,
eru vaxtarseinkuð (1).
Síðastliðinn áratug hafa mælingar á
hæð legbotns verið notaðar í mæðraeft-
irliti hér á landi sem kembirannsókn
(screening) á vaxtarseinkun. I fyrstu
var stuðst við sænskt legvaxtarrit (2,3)
en frá árinu 1988 hefur íslenskt legvaxt-
arrit (4) verið notað og er prentað í ís-
lensku mæðraskrána. Rit þetta er byggt
á mælingum legbotnshæðar hjá heil-
brigðum íslenskum konum I eðlilegri
meðgöngu. Við gerð ritsins kom í ljós,
að það liggur um 2 cm ofar hinu
sænska.
Legbotnshæðarmælingum var fyrst
lýst sem rannsóknaraðferð 1953 (5).
Tveimur áratugum síðar var aðferðin
tekin almennt í notkun í Svíþjóð.
Sænskur fæðingalæknir, Björn West-
in, hóf hana til vegs og virðingar, útbjó
legvaxtarrit fyrir sænskar konur og gaf
út leiðbeiningar um, hvernig legbotns-
hæðin skyldi mæld (3). Leiðbeining-
arnar fylgdu sænska legvaxtarritinu inn
í íslenska mæðravernd og eru enn í
fullu gildi. Mikilvægi slíkra leiðbeininga
er fólgið í því, að sé þeim fylgt í hví-
vetna, þá fæst samræmdur grunnur til
samanburðar á milli mælenda og mæl-
inganiðurstaðna. Afar mikilvægt er, að
allir þeir sem mæla legbotnshæð í
mæðraeftirliti noti sömu stöðluðu að-
ferðina og hviki aldrei frá henni. Með
því móti einu verður mælingaskekkju
haldið í lágmarki.
Um mælingaraðferðina
Aðferðin, sem hér er lýst, er að meg-
inuppistöðu sú, sem Westin mælti með
(3), en bætt er við nokkrum atriðum,
sem augljóst má telja, að sé til bóta að
samræma:
— Kona liggur á bakinu á bekk. Sé
halli undir höfðinu má hann a.m.k. ekki
ná niður fyrir herðar. Sá hluti hryggjar-
ins sem er undir leginu verður að vera
beinn.
— Konan liggur flötum beinum.
Málið breytist mikið, ef hún beygir
mjaðmir og hné. Þá breytist afstaða líf-
30 _______________________________________________ 1—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ