Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 29
IMOKKRIR PUIMKTAR LJR DAIMSKA
LJÓSMÆÐRABLAOilMU
Febrúarhefti 2001:
Nýtt kerfi sett á fyrir framhaldsnám
ljósmæðra(og hj úkrunarfræðinga,
röntgentækna, sjúkraþjálfara ofl.). Nám fyrir
ljósmæður er 3.5 ár sem skipt er í misseri.
Námið er 50% bóklegt og 50% verklegt og
gráða íyrir námið er "Bachelor of Midwifery".
Fyrstu nemendurnir byrja haustið 2001.
—o-----
Ný lög skylda ljósmæður til að láta
félagsmálayfirvöld vita ef þær í starfi sínu
komast að alvarlegri misnotkun ófrískra kvenna
á áfengi og/eða eiturlyfjum. Þessi skylda á við
hvort sem konan er samþykk eða ekki.
Markmiðið er að konunum verði boðin hjálp
eins fljótt og mögulegt er svo hægt verði að
koma í veg fyrir skaða á fóstrum. Lögin tóku
gildi í janúar 2001.
Annarsstaðar í blaðinu eru umræður um
mismikla eða litla ánægju ljósmæðra og lækna
um að þurfa þannig að brjóta þagnareið sinn
við skjólstæðinga. Þau velta fyrir sér hvort
lögin muni fæla ófríska fíkla frá ljósmæðrum
og læknum því þær beri oft kala í brjósti til
félagsmálayfirvalda.
Tjáning er erfið og gátlistar á fæðingarstofúm
er efni 2 greina sem fjalla um hve nauðsynlegar
skýrar vinnureglur eru á fæðingardeildum,
jafhvel við eðlilegar fæðingar til að koma í veg
fyrir mistök. Það er einnig nauðsyn að
heilbrigðisstarfsfólk tali skýrt saman jafnvel
yfir konunni á fæðingarstofunni svo óljós
skilaboð, rósamál og loðnar ábendingar valdi
ekki misskilningi og tefji framgang sem þyrfti
að gerast skjótt. Bent er á slóðina
www.patientsikkerhed.dk sem er um ráðstefnu
sem fjallaði um hvernig koma má í veg fyrir
mistök og óæskilega atburði á sjúkrahúsum.
Kvartanir frá sjúklingum fara fyrir ákveðna
klögunefnd sem aftur birtir nokkrar kvartanir
og niðurstöður sínar mánaðarlega á heimasíðu
sinni eða www.pkn.dk .Danska ljósmæðrablaðið
birtir þau mál sem varðar þeirra sérsvið og
gætu orðið til varnaðar eða til að læra af.
—o—
Reyklaus sjúkrahús: Eftir langar og heitar
umræður í danska ljósmæðrafélaginu varð
niðurstaðan sú að ljósmæður ættu að vinna
að því að gera sjúkrahús reyklaus. Tillaga í
þá átt væri að koma efni þar að lútandi inn
í ljósmæðraskólana svo nýjar ljósmæður
væru undir það búnar að koma út í reyklaust
umhverfi.
Katrín Edda Magnúsdóttir
Ljósmóðir hefur tekið saman
nokkra helstu punkta úr því
sem fjallað hefur verið um í
danska IjósmœðrablaðinuJyni
hluta ársins 2001
Marshefti 2001:
Stór grein er um fyrirtækið sem fhamleiðir
Pampers bleijur. Þeir hafa tekið stöðu
fyrirtækisins sem framleiðir Mönlycke í
útgáfu bæklins sem hefur í fjöldamörg ár
verið afhentur verðandi foreldrum í
Danmörku. Þeir fengu samninginn á þeim
forsendum að þeir stæðu fyrir umfangsmikilli
könnun meðal foreldra ungbama.
Heilbrigðistímaritið "Helse" var skráð
sem faglegur stuðningsaðili. Þegar
bæklingurinn kom út var þó könnuninni ekki
lokið og niðurstöður hennar þ.a.l. ekki í
bæklingnum. Ljósmæðrum, læknum og þeim
sem standa að mæðra og ungbarnavernd
finnst sem þeir hafi verið sviknir og vilja
meina að fyrirtækið vilji aðeins koma sér
fyrir á bleijumarkaðnum og einskær
gróðafíkn stjórni athöfnum þeirra.
Mestallt blaðið fer í viðtöl við framámenn
í heilbrigðismálum og virðist tilgangurinn
að finná sökudólg fyrir þessu klúðri. Þar
bendir hver á annan enda margir þættir í
málinu og líklegt að skortur á upplýsingaflæði
sé meginorsök.
229 milljónir bleija eru seldar árlega í
Danmörku. 55% markaðarins er
Libero(Mönlycke), 33% Pampers.
Stofnun sem hvetur til gæða í
heilbrigðisgeiranum veitti í ár verðlaun til
aðgerðar sem 2 ljósmæður og 1 læknir stóðu
að á Hvidovre Hospital. Markmiðið sem var
að fækka sogklukkufæðingum náðist þar
sem sogklukkufæðingum fækkaði úr 14.9%
í 10.6% á 2 árum án aukningar á keisurum
eða Vökudeildarinnlögnum. Verðlaunin
samsvöruðu um 250.000 íslenskum krónum.
-—o—