Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Síða 22
JÚGA
FYRiR BARIMSHAFAMDi KOMUR
hynning
Auður Bjarnadóttir jógakennari
Auóur hejur stundað
jóga í um 10 ár og tók
kennarapróf í Kalifomíu
jyrir um það bil tveimur
árum. A síðasta ári kynntist
hún svojógaJýrir
barnshafandi konur og
nýtti sér það sömuleiðis
vel á eigin meðgöngu
og í fœðingunni. Hún kennir
nú jógaJyrir bams-
hafandi konur í Kmmhúsinu
Meðganga og fæðing er ein merkilegasta
reynsla sem kona verður íyrir i lífinu. í flestum
tilfellum er sú lífsreynsla það stórkostlegasta
ferðalag sem nokkur kona hefur leggur upp í.
Hver kona fer í raun í sína eigin óvissuferð
því engar tvær meðgöngur né fæðingar eru
eins. Konunni er ætlað að gefa sig inn í þessa
óþekktu reynslu bæði líkamlega, andlega og
tilfinningalega. Hún veit í rauninni aldrei
viðhverju hún getur búist eða hvernig ferli
fæðingin verður. Eins og undir öll góð ferðalög
getur hún þó undirbúið sig á ýmsan hátt. Það
er að sjálfsögðu gott að stunda heilbrigt
líferni, hreyfa sig, borða hollan mat og sofa
nóg á meðgöngunni. En er það nóg? "Ef ég er
bara í nógu góðri þjálfun þá verður fæðingin
auðveldari, þá hef ég meira vald," gæti einhver
sagt. En grjótharðir magavöðvar veita
falskt öryggi. Aðalatriðið er ekki að vera í
toppformi líkamlega heldur öllu ífekar að vera
í toppformi andlega.
Sumar konur vilja helst ekkert hugsa um
fæðinguna á meðgöngunni en oft er þar á
ferðinni undirliggjandi ótti við hið óþekkta.
En að bæla óttann er heldur ekki lausnin.
Meðgangan er góður tími til að huga að hinni
heildrænu heilsu.
Ljósmæðrablaðið
nóv 2001
Á þessu tímabili er konan oftast rólegri,
innhverfari og líkamlega meðvitaðri en ella.
Líkami konunnar er sérstaklega næmur og
móttækilegur. Þá er tilvalið að stunda jóga.
Jóga fyrir barnshafandi konur hjálpar konunni
að draga sig út úr skarkala daglega lífsins,
beina athyglinni að sjálfri sér og barninu og
umfram allt að slaka á.
HVAÐERJÓGA?
Jóga er alhliða lífsspeki sem sprettur úr
hinni fornu menningu Indverja. Það er álitið
eitt elsta mannræktarkerfi veraldar og miðar
að þroska líkama, hugar og sálar. Jóga er hagnýt
leið, ekki trúarbrögð og ætti því að geta
verið fyrir alla óháð trúhneigð.
Jóga þýðir tenging eða sameining. Við
tengjum hugann við líkamann og notum til
þess öndunina. Það er að segja, öndunin
er eins og brú sem tengir huga og líkama og
færir þar með athyglina inn í andartakið.
Þegar við þroskum með okkur hæfileikann
til að stilla saman líkama, huga og sál fer af
stað heildræn meðvitund. Þannig mætti hugsa
sér að við séum sálarlíkami. Þegar við dýpkum
skilning okkar á sjálfum okkur þroskum við
um leið með okkur hæfileika til þess að
bregðast við á heilbrigðan og jafnvel
yfirvegaðan hátt í augnablikinu. Þegar hægist
á önduninni hægist á huganum og öryggi eykst.
Á þennan hátt hjálpar jóga, því ekkert er eins
mikilvægt í fæðingunni og að konan sé róleg
og yfirveguð. Þannig er hún best í stakk
búin að mæta átökunum sem oft fylgja og
getur jafnvel notið fæðingarinnar.
Það mætti kalla það jóga þegar litla barnið
snertir tæmar á sjálfú sér, eða þegar tvær sálir
mætast. Þegar við stundum jóga komumst við
í snertingu við okkur sjálf. Þegar við erum í
tengslum og snertingu við hvert augnablik
í fæðingarferlinu þá erum við í jóga.