Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 11

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 11
kom fram að upplýsingar og fræðsla á meðgöngu geta aukið tilfinningu um öryggi og þannig haft áhrif á að allt sé í lagi: “ ég heffengið meiri upplýsingar nú en á fyrri meðgöngum mínum, bæði varðandi fæðinguna sjálfa og meðgönguna.. ég hef nefninlega oft verið svo kvíðin og þá finnst mér mikilvægast af öllu að þér sé alltaf sagt hvað sé að gerast, að allar rannsóknir og mœlingar séu í lagi .... Að í raun gangi allt eðlilega fyrir sig...” Fjölmargar rannsóknir hafa gefið til kynna að samband sé milli ánægju kvenna á meðgöngu og fræðslu sem veitt er til verðandi mæðra ( Drew,Salmon og Webb 1989, Simkin 1990, Pope,Cooney,Graham,Holliday og Patel 1998). í þessari rannsókn nefndu þó fáar konur að fræðsla sem veitt er á meðgöngu hefði einhverja þýðingu eða að þær sæju hana sem sérstakan þátt í mæðraverndinni. Eftirfarandi stef voru greind í texta frá ljósmæðrunum. Þau stef sem tengdust huglægum þáttum eins og stuðningur voru mest áberandi í umræðunni hjá ljósmæðrum en tengdust þó oft umijöllun um eftirlit með líkamlegu heilbrigði: a) stuðningur við konuna á meðgöngu Flestar ljósmæðurnar sem talað var við í þessari rannsókn álitu stuðning vera einn aðal þáttinn í starfi sínu í mæðraverndinni og er það í samræmi við rannsóknir sem hafa verið gerðar á viðhorfum ljósmæðra til mæðravemdar annars staðar. I rannsókn sem ffamkvæmd var 1997 skilgreindu ljósmæður t.d. hlutverk sitt út frá þremur sjónarhornum: klíniskri færni, stuðningi og fræðslu til verðandi foreldra (Battersby og Thomson 1997). Eftirfarandi dæmi úr frásögnum ljósmæðra í þessari rannsókn endurspegla þetta viðhorf; “...megin hlutverk mœðraverndarinnar er að styðja konuna í gegnum meðgönguna.. og með því að gera það þá ertu líka að styðja hana gegnurn fæðinguna. Efþú veitir henni góðan stuðning á meðgöngu geturðu auðveldað henni fœðinguna..” “...mérfinnst mœðraverndin vera stuðningur fyrir konuna ogfjölskyldu hennar ... ég hvet þær til að koma með mennina sína með og ég vil tala við þau bæði .... Ég horfi meira á þetta eins og málefni fjölskyldunnar en ég gerði..og mérfmnst mitt hlutverk vera það að styðja fjölskylduna .... “ Ýmsar rannsóknir hafa gefið til kynna að til að konur finni fyrir ánægju og vellíðan á meðgöngu þurfi þær að finna fyrir stuðningi (Oakley 1992). Eitt form af stuðningi getur verið að fullvissa konuna um að allt sé í lagi en það er stef sem oft var samtengt umræðu um stuðning í viðtölunum við ljósmæðurnar. Matartími í „klaustrinu" b) uppörvun og fullvissa um að allt sé í lagi Ljósmæðurnar eyddu töluverðum tíma í að ræða að þær álitu það að fá staðfestingu á að allt væri í lagi væri einn mikilvægasti þátturinn í mæðravernd frá sjónarhóli konunnar. Þessi umræða var mjög oft tengd eftirliti með líkamlegu heilbrigði móður og fósturs auk ýmissa rannsókna á meðgöngu: “.... Ég býst við að þœr séu að leita eftir fullvissu á að allt sé í lagi.... að barnið sé í lagi....að hjartslátturinn sé í lagi og svoleiðis “....Þœr eru að leita eftir stuðningi....og fullvissu á að allt sé í lagi..sumar þeirra vita að allt er í lagi en sumar eru þreyttar og eru íþörffyrir að tala ..” Reyndar hefur því verið haldið fram að fullvissa um að allt sé í lagi sé ekki síður mikilvægt frá sjónarhomi fagfólksins þar sem að það dregur úr möguleikum á því að því yfirsjáist einhver frávik frá því eðlilega ( Steer 1993). Þannig hefur Kirkham haldið því fram að ljósmæður noti það að fullvissa sig og konuna um að allt sé í lagi til að verja sjálfa sig fyrir því að segja ranga hluti eða jafnvel til að koma í veg fyrir að konur leiti eftir upplýsingum (Kirkham 1993). I þessari Ljósmæðrablaðið nóv 2001

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.