Freyr - 01.11.1931, Blaðsíða 6
106
F R E Y R
1900 ............. 17500 —
1910 ............. 30400 —
1920 ............. 33000 —
Uppskeran hefir aukist frá ári til árs
og verulegur uppskerubrestur eigi orðið.
Þó hefir nokkur ár verið rýr uppskera,
t. d. 1892, þá hálfu minna en árið á
undan. Nálægt V3 minni uppskera en
best hefir verið áður, hefir og orðið
1897, 1907, 1914 og 1921. Af þessu má
sjá, að jarðeplarækt getur verið hér
nokkurnveginn árviss. Einkum þegar
þess er gætt að víða er jarðeplunum eigi
veitt sú aðhlvnning sem nauðsyn er á til
þess að þroski þeirra sé árviss.
1 landi sem voru, hefir jarðepla- og
grænmetisrækt mjög mikla þýðingu.
Kornyrkja er hér engin og verður aldrei
svo arðvænleg sé. Jarðepli, rófur og ann-
að grænmeti verður að koma í staðinn
fyrir kornið, og með því' er hægt að spara
roikil kornmatarkaup. Vér höfum ágætis
kjöt, fisk og mjólk, og það með jarðepl-
um og grænmeti er næringarrík og holl
fæða. Vér ræktum enn og notum of lítið
af jarðeplum og grænmeti. Hér skal að-
eins rætt um jarðeplin. Af eftirfarandi
skýrslu sést hve mikið hefir verið rækt-
að og flutt inn og notað alls á 5 ára
tímabili.
SKÝRSLA
um jarðeplanotkun á íslandi árin
1925—1929.
Inn- Upp-
flutt skera Alls
tnr. tnr. tnr.
1925 ............. 23290 34000 57290
1926 ............. 21300 34000 55300
1927 ............. 20930 42500 63430
1928 ............. 17780 42500 60280
1929 ............. 18640 39000 57640
Meðaltal 1925—29: 20388 38400 58788
Mannfjöldi 1930 er 108.700. Verður
því jarðeplanotkunin pr. mann nálega
54 kg.
Jarðepli þau er fluttust til landsins
1929 er talið að hafi kostað kr. 329.951,00
eða 18 kr. pr. tunnu.
Þessar tölur tala. Þær segja: Vér not-
um minna af jarðeplum en allir nágrann-
ar vorir og ræktum minst allra, en kaup-
um dýru verði frá útlöndum meira en l/A
af þeim jarðeplum, sem vér notum. Já,
1929 höfum vér greitt 330.000 kr. fyrir
aðflutt jarðepli.
1 bæjunum er nú víða atvinnuleysi. Al-
þingi síðasta veitti 300.000 kr. til að bæta
úr þeim vandræðum. Það er nær sama
upphæð og vér kaupum jarðepli fyrir. En
vér getum auðveldlega ræktað jarðepli,
sem svarar til þeirrar notkunar sem nú
er, já, og margfalt meira.
Ef vér gætum ræktað jarðepli til eigin
þarfa spörum vér að kaupa þau frá út-
löndum. Það er nú sem stendur um 300
þús. kr. árlega. Hér er aðeins að ræða um
eina vörutegund, en líkt mun ástatt með
margar fleiri. Vér. þurfum að verða sem
mest sjálfbjarga. Holt er heima hvað.
En getum vér aukið jarðeplarækt vora.
Já, það er hægt að auka hana svo, að
innan tveggja ára getum vér verið sjálf-
bjarga, ef dugur og vilji er til.
Að sjálfsögðu eru skilyrði til garðyrkju
næsta mismunandi hér á landi. Á Suður-
landi eru þau yfirleitt ágæt og reynslan
sýnir að af sama flatarmáli afla menii
álíka mikið og alment tíðkast erlendis.
í öðrum landshlutum eru skilyrðin
meira mismunandi. Á sumum stöðum all-
góð, þar sem mest er veðursæld, en langt
upp til dala og á annnesjum miður góð.
Næturfrost eyðileggur þar víða uppsker-
una síðari part sumars. Á þessum stöð-
um verða eigi jarðepli ræktuð nema með
sérstakri alúð og umhyggju. Garðstæði