Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1931, Page 9

Freyr - 01.11.1931, Page 9
FREYE 109 250 tnr. jarðepli. í athugasemdum vorum áætlun vér 150 tnr. pr. ha. Reykjavík er efst á blaði, sem skylt er. Hana vantar 13853 tunnur af jarðeplum. Þurfa Reykjavíkurbúar að kaupa þetta eða geta þeir ræktað það sjálfir? Til þess að rækta öll þessi jarðepli þarf 92 ha. Bærinn á mikið af ágætislandi, sem vei er fallið til garðyrkju og smágarða. En á þessu hefir hann legið sem ormur á gulli og eigi veitt einstaklingum greiðan aðgang að því. Besta land bæjarins er í Fossvogi. Þai myndi mega rækta 60—80 ha., sem væru ágætlega fallnir til smágarða. Innan við Elliðaár á bærinn einnig gott land til jarðeplaræktunar, og niður í landareign bæjarins má hið sama segja. Ef nú bær- inn léti undirbúa meira eða minna af þessu ágætis landi sínu til smágarða, myndu ótal hendur verða til að taka smá- reiti til ræktunar. Vjer efumst eigi um, að ef til þessa væri stofnað með fyrirhyggju og dugnaði, þá myndu Reykjavíkurbúar innan tveggja ára eigi þurfa að kaupa mikið að af garð- ávöxtum. Þá er Hafnarfjörður. Hann ræktar 220 tnr., en þarf 1960 tnr. Bærinn á lítið land til ræktunar, en úr Garðalandi myndi hann geta fengið hentugt garðsstæði til smágarða, 20—30 ha. Það er tvö- til þre- falt meira en þarf til að fullnægja jarð- eplaþörf bæjarins. Gullbringu- og Kjósarsýsla ræktar 1123 tnr. meira en hún þarfnast eftir meðal- talinu. Þar er auðvelt að rækta hálfu meira en nú gerist og þörf er á. Borgarf jarðarsýsla er einnig með 2513 tnr. yfir þarfir. Skiftir þar mestu um Akranes, sem eitt ræktar 2389 tnr. og gæti auðveldlega ræktað mikið meira. Mýrasýsla er rúmlega sjálfbjarga, en auðvelt er þar að auka jarðeplaræktina eftir þörfum. í Snæfellsnessýslu vantar 975 tnr. til að fullnægja meðalþörf. Víða eru þar ágæt skilyrði til jarðeplaræktar, svo auðvelt ætti hér að vera að bæta úr skák. 1 Dalasýslu vantar aðeins 273 tnr. Hver ábúandi þarf að rækta þar 1 tnr. meira en nú gerist. Með betri ræktun er takmarkinu náð og meira. í Barðastrandarsýslu virðast einnig vanta 186 tnr. og þó eru að norðanverðu við Breiðafjörð einhverjir hinir bestu staðir til garðyrkju hjer á landi. Landið blasir mót suðri og er vel skýlt og jarð- vegur ágætur. Ef hér er eigi hægt að rækta matjurtir til eigin þarfa og meira til, þá er eigi náttúrunni um að kenna heldur íbúunum. Vér erum þess fullvissir, að garðyrkja hér muni færast í aukana, svo eigi sé þörf fyrir aðkeypta garð- ávexti. I í ísaf jarðarsýslu vantar 1650 tnr. Það verður að viðurkennast að skilyrði eru hér einna erfiðust til jarðeplaræktar og garðyrkju. Þó hefir einstaklingum þar heppnast garðyrkja ágætlega. Garðurinn „Skrúður" á Núpi í Dýrafirði, sem séra Sigtryggur Guðlaugsson hefir ræktað, og blómagarður Höllu á Laugabóli o. fl. sýn- ir að hér eru möguleikar til garðyrkju, meiri en menn grunar. Vér efumst því eigi um, að Isafjarðarsýslan geti orðið sjálfbjarga, því dáð og dug til hverskon- ar framkvæmda vantar þar eigi. Þá er ísafjarðarkaupstaður. Þar er sagt, að aðeins séu ræktaðar 8 tnr., eu þörf á 1422. Staðhættir á Isafirði eru þannig, að lítil völ er á góðu landi til garðyrkju. Mun því þar þörf á aðkeypt- um jarðeplum. Þá er Strandasýsla. Þar rækta menn að- eins 29 tnr.,en þurfa 993 tnr. Ræktunar- skilyrðin eru þar erfið. í góðærum munu

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.