Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1931, Page 13

Freyr - 01.11.1931, Page 13
FEE YK 113 Brauð. Brauð er sú fæðutegund, sem mest er notuð, Það stendur daglega jafnt á borð- um hins ríka sem fátæka manns. Prá elstu tímum hefir brauð verið einn meginhlutí fæðunnar og er það þann dag i dag. í bænum sínum biðja menn um „dag- legt brauð“, og „í sveita þíns andlitis skalt þu þíns brauðs neyta“, stendur skrifað. Menn gátu frekar verið án allrar ann- arar fæðu en brauðs, og fyrir þær sakir hefir kornyrkja og kornvöiuverslun verið þungamiðjan í búskap flestra þjóða frá ómuna tíð. Spyrji menn í hverju þessi mikla þýð- ing kornsins liggi, þá er þar til að svara: Kornaldinin hafa það fram yfir allar aðrar fæðutegundir, að í þeim eru öll þau mörgu efni, sem eru næringu líkamans nauðsyn- leg og það í heppilegum hlutföllum, og bragðgæðin eru svo mikil, ef rétt er á haldið, að fæðan er jafn iystug hversu oft sem hennar er neytt. Sökum þess, hve lítið er af vatni í korn- aldinum eru þau saðsöm til fæðu og þola geymslu jafnvel árum saman án mikils umbúnaðar eða fyrirhafnar. Næringarefnin berast likamarum sum- part til uppbótar þeim vefsfrumlum, sem eyðst hafa við lífsstarfsemi líkamans, en sumpart sem hita- og orkulindir fyrir vinnu þá, sem líkaminn leysir af hendi. Þýðingarmestu næringarefni kornaldin- anna eru: Eggjahvítuefni, kolvetni, fita, ólífræn efni, lípoidar og bætiefni. Eggjahvítuefnin ásamt nokkrum hluta fitunnar og ólífrænu efnunum eru fyrst og fremst sem byggingarefni. Kolvetnin og fitan aftur á móti eru orkugjafar, en ólíf- rænuefni, lipoidar og bætiefnin eru þýð- ingarmikil í báðum tilfellum. Hér er um tvennskonar efnaskifti að ræða, sem í raun og veru er örðugt að aðgreina, því að eggjahvítuefnin eru einnig orkugjafar og geta komið i stað hinna. Það er þó ekki heppilegt og getur haft skaðlegar verkan- ir, ef til lengdar lætur. Orka næringarefnanna er mæld í hita- einingum: 1. gr. eggjahvítuefnis = 4,16 hitaein. 1. gr. kolvetnis = 4,10 — 1. gr. fitu = 9,30 — Vafalaust má finna hin heppilegustu efna- hlutföll milli eggjahvituefna annarsvegar og kolvetna -j- fitu hinsvegar. Hinar svo- nefndu efnaskiftatilraunir hafa gefið upp- lýsingar í þessu efni. Náttúran sjálf gefur einnig mjög ábyggilegar bendingar í þessa átt, sem sé í samsetningu brjóstamjólkur konunnar. Mjólkin er um lengri tíma ein- asta fæða hvítvoðungsins, • einmitt þann tímann, sem efnaskiftin vinna miklu frek- ar í þágu byggingarstarfsins, heldur en til orkuframleiðslu í líkamanum. I konumjólk eru hlutföllin milli eggjahvítuefna og kol- vetna -þ fitu sem 1 : 9 reiknuð í hitaein- ingum. I korni eru næringarefnahlutföllin næstum nákvæmlega hin sömu, ef meðal- tal er tekið. Rúgur Hveiti Hafrar Eggjahvíta 10°/0 12% H-12% Kolv. -f Pentósanar 79% 67% 62—66% Pita og lipoidar 2% 2°/0 05 QO o Ólífræn efni 2°/0 2% 2% Sellulósi 2°/0 2°/0 1,5% Vatn 15% 15% 13% Hlutfallstölur nokkurra fæðutegunda eru hér til samanburðar mjög lærdómsríkar: Eggjahvitu Kolvetnis Ostur hitaein. 1 hitaein. 30—15 Konumjólk 1 9,0 Korn 1 8,4 Kúamjólk 1 4,0 Egg 1 3,5 Ertur 1 2,3 Kálfskjöt 1 0,21

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.