Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1937, Page 7

Freyr - 01.05.1937, Page 7
F R E Y R 69 Seinna var rannsakað ann- ^rætoartaSíf" sýnish°rn af nýræktar- töðu frá sama stað, og var það slegið hálfum mánuði síðar en hið fyrra, en að öðru leyti voru bæði sýnis- hornin mjög svipuð. Meltanlegt reyndist: af eggjahvítuefnum 39%, feiti 55%, og öðrum köfnunarefnislausum samböndum 66%. Tölurnar sýna að tveir aðalflokk- ar næringarefnanna reynast nú töluvert tormeltari, en í fyrri rannsókninni. Sér- staklega gildir þetta um eggjahvítu- efnin, sem hér hafa reynst allmikið lak- ari en fóðurfræðin gerir ráð fyrir. Pep- sin-saltsýru-rannsókn sýndi h. u. b. 50% meltanlegt af þeim eða nálægt 28% meira en dýratilraunin. — Að öðru leyti urðu heildarniðurstöðurnar á þá leið, að liðlega 2 kg. af þessari nýræktartöðu þyrftu í fóðureininguna, hvort sem far- ið var eftir þeim tölum, sem rannsóknin leiddi í Ijós, eða hinni venjulegu efna- greiningu með hliðsjón af útlendum niðurstöðum um meltanleg næringarefni. Auk þeirra tveggja nýrækt- TaSa af gomlu artöðurannsókna, sem ég tum. nú hefi minnst dahtið a, gerði ég eina rannsókn á töðu af gömlu túni að Görðum á Álftanesi. Túnið fékk eingöngu búfjáráburð, og taðan, sem rannsökuð var, var slegin nálægt miðjum júlí. Hún var dálítið ornuð, en virtist annars vel verkuð. Klemenz Kristj- ánsson gerði einnig gróðurathuganir á þessari töðu, og sýndi rannsókn hans að 44,5% af henni var túnvingull, 28% língrös og 11,5% vallarsveifgras. Sam- anlagt eru þessar grastegundir 84% eða langsamlega aðalhluti heysins. Niður- stöður rannsóknarinnar um meltanleg næringarefni og fóðurgildi urðu miög svinaðar og í seinni nýræktartöðu-rann- sókninni, en ef farið er eftir tölum fóð- urfræðinnar verður hið reiknaða nær- ingargildi dálítið hærra. Tölur þær, sem ég nú hefi Heildarniour- „ , , . stöSur nernt, syna, að ef aðems hefðí verið gerð venjuleg fóðurefnagreining, og næringargildið síðan reiknað út með hliðsjón af hin- um erlendu meltingarmælikvörðum, þá hefði enginn teljandi munur, á þeim þremur heytegundum, sem rannsakaðar voru, komið í ljós. Fóðurgildið — reikn- að á þennan hátt — var hjá þeim öllum mjög svipað því, sem gert er ráð fyrir um meðaltöðu, eða á þá leið að nálægt 2 kg. þurfi í fóðureiningu. — Rann- sóknirnar sýndu aftur á móti að ný- ræktartaðan, sem fyr var slegin, var töluvert auðmeltari en hinar heyteg- undirnar, og fóðurgildi hennar þess- vegna 14—15% hærra, því að sam- kvæmt þeim þurfti tæplega 1,8 kg. af þessari nýræktartöðu í hverja fóður- einingu. Það er sérstök ástæða til þess að bera saman nýræktartöðurannsókn- irnar, því að hinar ólíku niðurstöður þeirra stafa eingöngu frá mismunandi sláttu-tíma. Lakari nýræktartaðan var slegin hálfum mánuði síðar en hin auð- meltari og betri, og af þessari ástæðu einni saman virðist næringargildi henn- ar hafa rýrnað um 14—15%. — Taða af gömlu túni reyndist miður en betri nýræktartaðan, sem slegin var á sama tíma, og getur það varla stafað af öðru en því, að sú fyrnefnda var dálítið orn- uð, en nýræktartaðan var aftur á móti græn og ágætlega verkuð. Af þeim þrem rannsóknum, sem gerð- ar voru, gefur ein allmikið betri niður- stöður en þær sem fást ef reiknað er út frá venjulegri fóðurefnagreiningu, með hliðsjón af erlendum tölum um meltan- leg næringarefni. í annari rannsókn eru

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.