Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.1937, Side 5

Freyr - 01.11.1937, Side 5
F R E Y R 163 síðan 1925 hefir oft verið óvenjugott og aldrei svo slæmt, að þaS hafi valdið mjög lakri fjárhagslegri afkomu. Enda hefir fram- leiðsla þessara atvinnuvega verið meiri og betri en áður hefir þekkst. Sjávarútvegurinn haföi óvenjulega aflasæld, senj þakka má frið- un stríðsáranna á fiskiimiðunum hér viö land, sem tæpast er hægt að búast við framvegis. Orsakanna til fjárhagsvandræða þessara. at- vinnuvega verður aS leita annað, þær stafa að nokkru af verðlækkun á útflutningsvörum okkar á heimsrnarkaðinum, en þó sérstaklega af gengishækkun íslenzkra peninga, sem gerð var 1925, og sem lækkaði afurðaverð um 69% er. hækkaði skuldir atvinnuveganna um 69% og þann veg kippir fótum undan fjárhags- legri afkomu framleiðslu stéttanna, og skap- ar það misræmi í íslenzku þjóðlífi, sem þjáð hefir þióðina undanfarið. Það helzta, sem Alþingi hefir gert til hjálp- ar þessum atvinnuvegum, er, eins og áður er getið, lögin uln Kreppulánasjóð og Skulda- skilasióð vélbátaeigenda., sem veita löng og ódýr ián, og veittu möguleika til eftirgjafar af óveðtrvggðum skuldum, en sem kom ekki að fullu haldi fyrir landbúnaðinn, þar sem slík lán voru aðallega við félög bændanna s.iálfra, og einstaklinga sem í sveitunum búa. Þá eru þaö afurðalögin, lög um grænmetis- verzlun ríkisins og nýbvlalögin til viðreisnar landbúnaðinum, en lögfesting Sölusambands íslenzkra fiskfratmleiðenda, sem aðal fiskút- fivtjanda, stofnun síldarmjölsverksmiðia rík- isins og Fiskimálanefnd, til hiálpar sjávar- útveginum. Og framlag úr ríkis- og bæjar- sjóðum til atvinnubóta, atvinnidausu fólki. Þessar aðgerðir til bættrar afkomu atvinnu- vep’anna og útrýmingar atvinnuleys'sins liafa ekki verið þess megnugar að rétta svo við hag þeirra sem þurfti eða útrýma atvinnuskort- inu(m. Það barf stórfelldari aðgerða en þeirra, sem ennþá hafa verið gerðar. sem verði bess megnugar að skana heilbrigðan grundvöll fvrir atvinnulíf þjóðarinnar, og tryggi svo vel setn unnt er, réttlátan arð vinnunnar. Það má ekki svo til ganga að eiginhagsmunir einstaklinga, flokka og stétta, þröngvi svo kosti atvinnustéttanna sem verið hefir um hríð. Slíkt leiðir til menningarleysis fyrir þjóðina, einnig þeirra, sem fleyta mr rjómann fjárhagslega. II. Réttlát skipting þjóðarteknanna. Það verður að finna leið til jafnari skipt- ingar á framleiðslu þjóðarinnar og öðrum tekjum, milli þegnanna. Það þarf að skapa aðstöðu fyrir miklu fleiri sjálfstæða atvinnu- rekendur í sveit og við sjó, svo rnarga að ekki verði fleiri rnenn við önnur störf en fullkom- in vinna fyrir, og ber í því sambandi að athuga, hvort ekki er hægt aö bæta svo starfs- háttu í opinberri þjónustu, ýmsum stofnun- um og verzlunarrekstri, að meiri afköst fáist, og þann veg fækka þar starfskröftum, sem bætzt geti við í hóp þeirra, er að verðmætis- framleiðslunni vinna. A hvern hátt er auðveldast og bezt að ráða bót á fjárhagsvandræðum og fámenni aðal atvinnuveganna, og þar með atvinnuleys- inu? Vil ég nú segja mitt álit um hva.ð gera skuli. Ég vil taka það fram, að ég miða tillög- urnar til úrlausnar þessum vandalmálum við þá skoðun mína, að ég tel þjóðfélaginu beri skylda til, að sjá svo um, að þegnarnir eigi þess kost að fá notið krafta sinna í þjóðnýtu starfi, og að þeir fái notið arðs vinnu sinnar, að svo miklu leyti, sem ekki þarf að taka þar hlut af til sameiginlegra þarfa. Enn- fremur að stuðla beri að því, 'að sem flestir þegnarnir fái þess kost að neyta hæfileika sinna í sjálfstæðu starfi, annað hvort e-inir, eða setm jafn réttháir félagar. Það nýtist ekki að öllum hæfileikum einstakl- inganna, og þeir ná ekki þeim þroska í lífi sínu, sem þeir hafa hæfileika til, nema þeir séu frjálsir í hugsun og starfi

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.