Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.1937, Side 12

Freyr - 01.11.1937, Side 12
170 P R E Y R En það var ganialla manna mál að 30 hærur væru á við kaupakonu. Og allir hér um slóðir vita þess dæmi; að vegna hæranna liafi það orðið gott og sæmilegt fóður, sem ella hefði orðið ónýtt. Hver hefir efni á að spara eyr- irinn; en kasta krónunni? Hver hefir efni á að búa hærulaus? Eg get ekki verið þegjandi vitni að því, að milljónaauður fari forgörðum vegna þess, að þau hjálparráð, sem við þó þekkjum, eru forsmáð. Því lief ég* lítillega minnzt á það tvennt, sem hér hefir hjálpað fólki til að ganga sigrandi af hólmi. Og ég* heiti á ykk- ur, sem vitið, hve góð úrræði þetta eru, og skiljið hve voðalegu tjóni xirræðaleysið í liey- skapnum veldur. Takið þið undir við þær raddir, sem benda á bjargráðin, svo að þær verði að herópi, sem hljómar um endilangt Island. Þið, sem vitið, að reynslan ein get- ur lofað hærur og vothey maklega, látiS það verða árangur iðju ykkar, að hver bóndi geti og vilji njóta þess. Og- þið, sem ekki liafið reynt þetta. Látið fáeina hesta í vothey til reynslu, þegar allt er að grotna niður í liönd- um ykkar með gamla laginu. Og fáið ykkur eina hæru og vitið hvort hún gerir nokleuð gagn. Islenzk bændastétt á óendanlega mikið undir því, að hún tileinki sér þá heyskapar- menningu, sem brýtur óþurrkana á bak afú ur og útrýmir hröktum lieyjum. Þar skal hún stíga merkilegt spor til bættrar afkomu og betra lífs. Það er ódauðlegt starf í þágu sannrar þjóðmenningar. Sunnudaginn 1. í vetri 1937. Halldór Kristjánsson. Fjölgwt dýrateg- unda vorra. I. Dýralíf á landi hér er ærið fáskrúðugt, cg íábreyttara en vera þyrfti. Þó hafa dýra- tegundirnar verið enn færri fyr á öldum, en nú eru þær. — Lega landsins og veðurfar veldur hér meztu um, en þó ekki öllu. Yeð- urfarinu getum við auðvitað ekki breytt, en sérstaða landsins, sú landfræðilega, er nú ekki iengur í vegi fyrir því, að dýrategundunum geti fjölgað að miklum mun. — Svo er þekk- ingu og tækni nútímans fyrir að þakka. Vegna veðráttunnar gæti lifað hér mun fleiri dýrategundir en nú eru, og það góðu lífi. Gæti það á nýjan hátt orðið okkur til ávinnings, og því fullkomlega tímabært, að taka þetta mál til yfirvegunar og fram- kvæmda. Innflutningur nýrrá dýrategunda er nú ekki lengur talin nein fjarstæða, þ. e. a. s. þeirra tegunda, sem í einhverju geta orðið til nokkurrar nytsemdar, en í engu til skaða. Og sú byrjun sem hafin er til fjölgunar nytja- dýra á landi hér, stefnir í rétta átt, En betur má, svo vel sé. — Allrar varúðar verður auð- vitað að gæta við innflutning dýranna, vegna smithættunnar, sem af þeim getur stafað, ef einhverjir kynlegir sjúkdómar gæti leynzt imeð þeim. En sú hætta er aðallega við- víkjandi innflutningi sumra húsdýra- teg- unda, en því minni sem dýrin eru viltari og liarðgerðari áð eðlisfari. — Um innflutning slíkra dýrategunda verður hér aðallega rætt, og því ekki ástæða til að f jölyrða um sýking- arhættuna í því sambandi. II. Það, sem einkum hefir verið gert til fjölg- unar dýrategundunum á landi hér, er inn- flutningur nokkurra tegunda búrdýra, (c:

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.