Freyr - 01.11.1937, Page 23
PEE YR
181
Norræn garðyrkjusýning
í Kaupmannahöfn.
Dagana 23. sept til 3. okt í haust var hald-
íj hin 6. norræna garðyrkjusýriing* — í hinm
m'iklu sýningarliöll Foriun í Kaupmannaliöfn
— og var það nú í fyrsta sinni að Finnar og
lslendingar tóku þátt í þessum norrænu
garðyrkjusýningum og' Færeyingar og Græn-
lendingar voru líka með. Sýningin var liald-
in til m'inningar um 50 ára ■. afmæli félags
danskra garðyrkjumanna og þeir höfðu mest-
an veg og vanda af undirbúningi hennar,
skipulag'i og fjárliagslegri afkomu.
Nokkra liugmynd geta imenn gert sér um
síærð sýningarinnar af því, að til viðbótar við
hrirum, sem er hringlöguð bygging með 600
m2 gólffleti, und'ir háu hvolfþaki úr gleri,
voru reistar skyndibyggingar í gróðurhúsa-
stíl, alls 3000 m2 að gólfmáli, og þar að auki
lagði sýriingin undir sig um 10000 m2 svæði
undir berum himni, svo að alls hefr þá sýn-
ingarsvæðið verið fullar 6 dagsláttur. Má
nærri geta að þar liefir verið margt fagurt
að líta og girnilegt, — svo að óvíst er aS fjöl-
skrúðugra hafi verið í aldingarðinum Eden,
— enda þótti mörgum fýsilegt þar að koma,
t.d. komu einn daginn um 35 þús. manns og
alls komu þangað svo margir, að nærri lætiv
að svari því að hver e'inasti Islendingur hefði
komiö þar tvisvar. ■—■ Þetta er líka fjölsótt-
as'ra sýning, sem haldin hefir verið í Kaup-
mannahöfn.
Þetta eru sönn orð í tíma töluö,þar sem nú
á að lögskipa eina útrýmingarböðun, án til-
lits til sótthreinsunar fjárhúsanna.
I kaflanum um ormaveiki gætir nokkurs
misskilnings um vinstrarorminn, Ostertagia
ostertagi. Yitanlega berast egg hans út meS
saurnum, en lirfur hans, sem berast í fé, l’ifa
Franih. á hls. 188.
Hverju landi var hazlaður völlur sér á sýn-
ingunni, og vitanlega fengu Danir þar bróð-
urpartinn, bæði vegna þess að þe'ir standa
frændþjóðunum framar um 'margt í garð-
yrkjunni og- svo voru hæg heimatökin hjá
þeim að sækja sýriinguna- meö sína fram-
ieiðslu. Iiin skandinavisku löndin tóku og
mjög * 1 myndarlegan þátt í sýriingunni, en
einna mest bar þar á aldinræktinni — sam-
anborið við blómskrúð Dana — og varð lítiö
úi- sýningum Færeyinga, Grænlendinga og
okkar Islendinga, í samanburð'i við sýningar
hinna þjóðanna. En allir fengu að vera með
og voru velkomnir hver með sitt.
Það er ekki tilgangurinn að lýsa hér þess-
ari miklu sýriingu, — enda hefir ritstjóri
Freys t'il þess engin skilyrði — en segja að
eins nokkuð frá íslenzku sýningunni, eftir
því sem Bjarni alþm. Asgeirsson hefir ritað
um hana í Nýja Dag'bl., en hann, ásamt Ragn-
ari Asgéirssyni, Ingimar Sigurðssyni o.fl. var
reeðal þeirra, er sóttu sýninguna hér að heim-
an, og allir þessir o.fl. sýndu þar framleiðslu
sína.
Vegnatíöarfarsins hér í sumar, var hugsað
til sýningarinnar með 1 nokkrum kvíða hér
lieima og óttast um að hún mundi verða okk-
ui til lítils sóma, þrátt fyrir ómótmælanlega
rnikla og ánægjulega þróun garðyrkjunnar
hér á síðustu árum. Eftir á ber þó öllum sam-
an um að sýning okkar hafi orSIð landinu og
þjóðinni til fyllsta sóma og vaklð óhemju at-
hygli sýningargesta, og var það e'inkum gróð-
urhúsaræktin, sem bætti upp fáskrúðuga sýn-
ingu útijurta. Sérstaka athygli' vöktu tctoiat-
arnir, sem fengu þann dóm, aö þeir jöfnuð-
ust fyllilega við tómata livar sem væri annar-
staðar, og mikla athygli vakti það að sjá
þarna íslenzka vínberjaklasa, fallega og full-
þroskaða.
Það fór að sjálfsögðu ekki mikiS fyrir sýn-
'ing’unni okkar, á hinu stóra sýningarsvæði,
en fullyrt 'er þó að hver einasti sýningar-
gestur hafi veitt lienni sérstaka athygli, og