Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1937, Blaðsíða 10

Freyr - 01.11.1937, Blaðsíða 10
168 FHEYR liér. Nágrannar mínir eru komnir svo langt í lieyskaparmenningu, að þeir geta mætt sum- artíð eins og þessari, vandræðalaust. Það er tvennt, sem hjálpar mönnum liér til að ná þessum góða árangri. Annað er vot- heysverkun. Hitt er hœrur. Um þetta tvennt vildi ég fara fáum orð- um. Eg geri það ekki af því að ég kunni bet- ur að nota mér þessi bjargráð, en margir aðr- ir. En mér rennur svo til rifja, að stétt mín skuli tapa milljón á milljón ofan, vegna þess, að hún kann ekki tök á þessu tvennu, og ég get ekki látið vera að taka undir við þær fáu raddir, sem hafa kvatt sér hljóðs til að benda á gildi þess. VOTHEY. Hér í sveit er enginn bóndi svo, að hann eigi ekki votheysgryfju. Svo almennur er skilningurinn á gildi þessarar heyverkunar, og svo góð er sú reynsla, sem fengizt hefir. Ég liygg, að þessi almenna vothe-ysverkun sé ein sér, nægileg rök til að sanna yfirburði þess. En samt ætla ég að minnast dálítið á þá. Yotheysverkun er öruggari en þurrkun. Það er hægt að ralca heyið nýtt af ljánum aka því í hiöðu, hvort sem er rigning eða sól. Hér rigndi svo viku eftir viku í sumar, að enginn dagur var þurr. Við tókum hey okkar eftir því, sem það losnaði og hirtum það, þó að vatnið læki niður úr liverju fangi. Þannig getur heyskapurinn haldið áfram, ró- lega — óhindrað — áhyggjulaust. Ég hygg, að allt nýslægjuhey verkist vel blautt. Það er minni vinna við votheysverkun en við þurrkun, einkum í votviðratíð. Þurrheyið verður betra á þeim heimilum, sem hafa vothey. Þessi fullyrðing virðist e. t. v. dálítið vafasöm, áður en mál.ið er athugað. En þetta er ofur eðlilegt. Yegna þess, að menn raka og hirða í vothey regndagana, slá þeir minna, en ef þeir sinntu því eingöngu. Miklu minna hey bíður þurrks, en ella myndi. Því er hægara að sinna öllu því, sem þurrka á, koma því áleiðis og bjarga frá skemmdum, þegar þurr stund gefst. Þetta er svo augljóst, að manni er skylt að fullyrða, að vegna vot- heysins verði þurrheyið betra. Þar sem menn treysta eingöngu á þurrk- inn og eiga allt undir honum, hættir þeim við að láta hey sín í hlöðu, fyrr en heppilegt vr. Það er töluvert algengt, að hey brenni til kaldra kola, Hins er síður getið, þó að hey brenni svo, að það líkist helzt ösku og molni undan hendinni, ef á því er snert. Þó mun sá bruhi eyðileggja meira en liið bjarta bál, sem brennur í rúst. Ilitt liggur í augum uppi, að rnenn vanda betur þurrk á heyi, þegar það er ekki meira en svo, að þeir ráða við það. Minna þurrhey brynni, ef votheysgerð ykist. Og vothey brennur aldrei. Það er líka mjög lítil og raunar engin hætta á að vothey fjúki. Votliey er öruggara en þurrhey í verkun og geymslu. Mér er ekki kunnugt um, hve víðtæk og mikil reynsla er fengin um fóðrun á votheyi. Sjálfur hef ég ætíð ær og hesta á því ein- tómu, og gefið kúm það að 2/5, og allt farið vél. Og mér er kunugt um samskonar reynslu ýmsra annarra. Ég trúi því, að vothey sé jafn einhlítt fóður og þurrheyið. Annað mál er það, að vothey getur verið illa verkað og skemmt, eins og annað hey, og þá geta skepn- nr veikst af því eins og öðru heyi, þó að ég hafi ekki persónulega reynslu af því sjálfur. Einn er sá kostur enn, sem votheyið hefir umfram þurrhey. Það er ryklaust. Það er mikill kostur. Hér er landlægjur ólæknandi lungnasjúkdómur, sem heitir silikósa. Hann orsakast meöal annars af heyryki. Hann þjáir bæði menn og skepnur. Læknar líta svo á, að þeim, sem hafa silikósu, sé þrefalt hættara við kvefi, en öðrum. Liggur þá ekki opið fyr- ir að álykta, að sauðfé okkar sé verr við því búiiS, að mæta hverskonar lungnasjúkdómum,

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.