Freyr - 01.11.1937, Side 30
188
F R E Y R
Sauðfé og Sauðfjársjúkdómar.
Framhald af hls. 181.
mn skeið í vinstrarveggnum áður en þær ná
kynþroska.
Þá er ágætur kafli um sullaveikina.
Þá tekur v'ið kafli uni hina ýmsu líffæra-
sjúkdóma og síðast um eiitranir af völdum
málma og jurta, mikill fróðleikur og gagn-
legur.
Þrátt fyrir annmarka, sem ég hefi hér upp
talið, er bókinn mjög vel rituð og inniheldur
m'ikinn og gagnlegan fróðLeiiv fyrir fjárbænd-
ui. Sérstaldega eru sjúlvdómsiýsingar Sigurð-
ar ágætar, giöggar og ljóslifandi. Enda fara
fara saman lijá höfundi giögg eftirteiit og
löng reynsl á þessu sv'iði. Sigurður skrifar
bókina í tilefni af 25 ára starfsafmæli sínu.
Bókin ætti að vera stöðug hvatn'ing fyrir
f járbændur landsins í starfi þeirra og stríði'
við ýmsa sjúkdóma, og vera til á 'kverju
sveitaheimili, enda er verðið mjög viðráðan-
legt.
Þess mætti geta, sem noklcurskonar eftir-
mála, að við lesíur bókarinnar vekur það
sérstaka athygli manns, að höf. hefir í
umtali sínu um marga sjúlídóma hérlenda
ekki getað stuðst v’ið neinar íslenzkar vísinda-
legar rannsóknir á þeim. Má þar nefna riðu,
fósturlát, augnveiki, undirflög, mjólkursótt,
Hvanneyrarveiki, fjöruskjögur o.fl. o.fl., auk
margra vísindalegra verkefna í ormaveildnni.
st. í Reykjavík, 7. des. 1937.
Ásgeir Einarsson, dýral.
Reyðarfirði.
Ávarp til Hvannéyringa.
Eftir rúmlega eitt ár, eða vorið 1939, á Bænda-
skólinn á Hvanneyri 50 ára afmæli. I ráði er við
það tækifæri að gefa út minningarrit um sögu
og starf skólans í 50 ár. En jafnframt þeirri
starfssögu má telja það mikils vert að fá sem
gleggstar upplýsingar um nemendur skólans,
eldri sem yngri og hvort sem þeir hafa útskrif-
ast sem búfræðingar af skólanum eða ekki. Mundi
það geta orðið til fróðleiks og ánægju fyrir ýmsa
að slík nemendaskrá yrði birt og mun það að lík-
indum verða gert í fyrirhuguðu minningarriti og
ef til vill í Búfræðingnum, sem nemendafélagið
Hvanneyringur hefir nú keypt og mun gefa út á
sinn kostnað. Viljum við um leið nota tækifærið
til þess að skora á alla Hvanneyringa að gerast
áskrifendur að Búfræðingnum.
Til þess að nemendaskrá sú, sem að framan
getur, verði nákværn og ábyggileg, þurfa upplýs-
ingarnar heizt að koma frá viðkomanda sjálfum.
Vió viljum því vinsamlega, en ákveðij skora á
alla Hvanneyringa, hvort sem þeir hafa stundað
nám við Hvanneyrarskólann í lengri eða skemmri
tíma, að senda sem fyrst eftirfarandi upplýsingar
um sig til Guðmundar Jónssonar, kennara á
Hvanneyri, sem er ritstjóri Búfræðingsins, og er
að safna gögnum til sögu skólsns:
1. Fallt nafn og heimilisfang og dvalarár á
skólanum.
2. Aðalstarf og titil (bóndi, vinnumaður, kenn-
ari o. s. frv.) og helztu aukastörf.
Hvanneyringar! Við vonum, að þið látið það
ekki undir höfuð leggjast að senda þessar upp-
lýsingar. Þið viljið eflaust allir fá nöfn ykkar í
nemendaskránni með réttum upplýsingum, en
frumskilyrði þess er, að þær komi frá ykkur
sjálfum, einnig frá ykkur, sem við undirritaðir
þekkjum persónulega og eruð útskrifaðir á síð-
ustu árum.
Með vinsemd og kærri kveðju.
Runólfur Sveinsson, Guðmundur Jónsson,
Hvanneyri. Hvanneyri.
Þorgils Guðmundsson,
Reykholti.