Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1940, Page 11

Freyr - 01.12.1940, Page 11
FREYR 185 bóndinn er ennþá virður vel, og starf hans talið til mikilla nytja. Og undarlega margir sem vegna aðstöðu sinnar búa að öðru, þrá innst inni sveitalífið og unað þess, eða a. m. k. einhverja snertingu við það, sem grœr og vex. Um það vitna m. a. gróðurblettimir, blóma- og trjá-reitimir mörgu og fögru, sem nú fjölgar með ári hverju við stein- lögð stræti kaupstaðanna. Nú heyrir það sjálfsagt til undantekningar, ef lengur er hægt að tala um þá, „sem telja sér lítinn yndisarð að annast blómgaðan jurtagarð“. Ég veit, að það er varhugavert að dæma einni stétt þjóðfélagsins betri hlut en ann- arri. Þýðing þess, sem vér störfum að, fer auðvitað ekki fyrst og fremst eftir því, hvað það er, heldur hinu, hvernig það er rcekt eða af hendi leyst. En fyrir oss, sem verkið vinnum, hefir það alveg ómetan- legt gildi, að það sjálft veiti oss sem mesta fullnægingu. Og að því leyti segi ég alveg hiklaust, að hlutskipti þeirra, sem rækta landið, yrkja jörðina, sé gott. Það, sem þannig er borið úr býtum efnislega, er ekki allt af svo ýkja eftirsóknarvert. Það er mannlegt, að hugsa líka um þá hlið. En það starf, sem byggist eingöngu á því, vant- ar göfgi og fegurð. í fornöld var sumstaðar litið á sáningu akuryrkjumannsins sem heilaga athöfn, er hefði stórvægilegt trúargildi. Eins og vér munum líka úr biblíusögunum, að frum- gróðinn af ávexti jarðarinnar var borinn sem fórn fram fyrir guð. Ég held, að enn sé einmitt talsvert eftir af þeim hugsunarhætti, er þessum siðvenj- um réð í öndverðu. Það er viss helgi, sem hvílir enn yfir störfum sáðmannsins og þeirra, sem með honum vinna að ræktun landsins umfram það, sem einkennir flest önnur störf. Og ég held líka, að þess vegna finni sál mannsins meiri fullnægingu og fögnuð í þeim en svo víða annars staðar, þar sem hann leitar sér brauðs og „erfiðar í sveita síns andlitis“. Þetta er í rauninni ofur skiljanlegt. í innsta eðli hvers einasta andlega heilbrigðs manns er fólgin meira eða minna dulin þrá þess að ganga í lið með lífinu sjálfu, styðja það að einhverju leyti til vaxtar og þroska. þessi hvöt kemur víða fram, en það er sjálf- sagt ekki ofmælt, að hvergi nýtur hún sín betur en í störfum þeirra, sem „hjálpa guði til að skapa“, eins og Þórhallur biskup á eitt sinn að hafa komizt að orði um hlut- verk bóndans. Ég tel það heppilegt, að vér sem flest eignumst þenna skilning og vinnum í þess- um anda störf vor. En þá má oss aðeins ekki gleymast þetta, sem Meistarinn segir í lík- ingunni fögru um sæðið, sem grær og vex, sæðið, sem maður kastar á jörðina í trú á frjómátt þess og vaxtarmöguleika, og upp- sker síðan sem fullvaxinn ávöxt, er gefur honum öll laun erfiðis hans og vinnu. „Sœðið grœr og vex, hann veit eigi með hverjum hœtti,“ stendur í sögunni. Er það ekki svo, að um þetta atriði, sem er hið veigamesta, ríki oftast furðuleg þögn? Vér lítum yfir það, sem vér höfum skapað, og sjá, það er harla gott! Vér tölum um það, sem vér höfum afrekað á þessu sviði, ræktað og prýtt. En hver gaf oss landið, sem vér byggjum, landið, sem að vísu „agar oss strangt með sín ísköldu él“, en geymir í skauti sínu svo óendanlega mikla möguleika gróðurs og vaxtar fyrir oss og börn vor? Landið, sem á hverju vori breytist í nóttlausa veröld og opnar oss dýrðarheima ósnortinnar fegurð- ar og heillandi dásemda? Landið friðsæla og fagra, sem vér elskum öll og viljum svo gjarna hjálpast að til að gera enn byggilegra og betra? Hver lét grösin gróa og jörðina skrýðast skrúði vall- arins, áður en nokkur mannshönd kom þar

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.