Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1940, Qupperneq 23

Freyr - 01.12.1940, Qupperneq 23
FREYR 197 yfir dölunum? Fljúga þá ekki skýjadísir í svanalíki ofan við kvöldroðann? Eg veit ekki, hvað öðrum þykir, en mér finnst að á svona kvöldum sé jafnvel minnsta sandkorn lífi gætt. Þá finnst mér, að allt, sem lífsanda dregur, er og heitir í þessu landi, séu hollvættir þjóða'rinnar, sem byggir það. Ef til vill er það stærsta sjálfstæðismálið að gera henni hliðholl í starfi og vinveitt öll þessi öfl náttúrunnar, þekkt og óþekkt. Það gera bændurnir öll- um öðrum fremur. Þeir eru líka frjálsustu mennirnir í þessu landi. Lesandi góðúr, finnst þér ekki þetta vera barnalegt hjal óreynds manns, er lætur alvarlegra staðreynda að mestu ó- getið? Erum við ekki lítil, varnaxlaus, fá- tæk, hernumin þjóð, sem á frelsi sitt und- ir náð og miskunn stórveldanna? Eigum við að öðru leyti ekki velferð okkar undir því komna, hvort hernaðurinn eða haf- ísinn lokar siglingaleiðúm, hvort síldin bregzt eða grasvöxturinn og hvort stemmt verður stigu fyrir fjárpestunum eða kart- öfluuppskeran er þolanleg á haustin? Má vera, að satt sé. En stundum kemur mér í hug, hvort okkur væri ekki hollaxa að hugsa ofurlítið minna um deilumál er- lendra ríkja en meira um föðurlandið, minna um útlendan her en meira um landsins eigin börn, minna um austrænar og suðlenzkar öfgastefnur en meira um heimilin okkar, túnin og garðana. Er ekki heillavænlegra að verja tíma og kröftum til að hlúa að eigin verðmætum en kasta þeim á glæ, verma sig við arinelda móður- málsins og bókmennta þess heldur en gleypa rykið úr erlendum sorpritum, sem flæða yfir landið, öllum til skaða og skammar? Hver einasti þegn í þessu fámenna landi er þess megnugur að vinna stórvirki, ef hann vill. En til þess að vilja það og geta, Þarf hann að elska landið, þjóðina og tungu hennar, menningu og fortíð dálítið meira en við gerum flest. Hann þarf að eiga heilbrigðan metnað og sj álfstraust. Um fram allt þarf hann þó að eiga þá fórnfýsi og ósíngirni, sem hver og einn góður drengur verður að birta í starfi sínu heildinni til hagsbóta. Sá einn er frjáls, sem getur lagt á sig einhverjar hömlur af sjálfsdáðum, sá einn hamingjusamur, sem hjálpar öðrum til vaxtar um leið og hann þroskast sjálfur, sá einn langlífur í landinu, sem leggur einhverjar fórnir á altari framtíðarinnar: að hugsa ekki í árum, en öldum,, að alheimta ei daglaun að kvöldum — því svo lengist mannsævin mest. Þjóð, sem hefur það fyrir æðsta boðorð og leiðarljós, varðveitir sitt innra sjálf- stæffi. Hún er engum öðrum þjóðum háð, andlega séð. Hún er á vaxtarbraut og þró- unar og á það ekki á hættu að lenda í tröllahöndum. Þoroddur Guðmundsson. --------------------------- Yið óskum ollnm Tlðskiftamonnuni okkar ^>£eðU‘ecp:a jói‘a Sölnfélag Oarðyi'kjunianna.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.