Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1949, Side 11
TÍMARIT V.F.Í. 1949
65
3. mynd. Skeljasandur í og umhverfis Faxaflóa.
Á uppdrættinum eru auðkenndir þeir staðir, þar sem fundizt hefur sandur, sem inniheldur meira en 50% af skel (sbr.
4., 5. og 6. töflu). Hinn auðkenndi blettur í Flóanum út af Hvalfirði er lauslega teiknaður í samræmi við 4. mynd.
hreinum skeljasandi. Hefur lega þess verið teiknuð
lauslega á meðfylgjandi uppdrátt af Faxaflóa (3.
mynd) að svo miklu leyti, sem Flóinn var rannsak-
aður. En vitað er með nokkurri vissu, að það nær
lengra út og vestur, og að utar í Flóanum er víða
skeljasandur, þótt ekki þætti ástæða á þessu stigi
málsins að kanna það frekar. Á hinu auðkennda
svæði hefur fundizt hreinn eða því sem næst hreinn
skeljasandur (sandur, sem inniheldur 90—100% af
skel), en þau svæði í Flóanum, sem á hefur fundizt
kalksnauðari skeljasandur, eru ekki auðkennd. Hið
auðkennda svæði meðfram Syðra-Hrauni er um 50
km- að flatarmáli.
Á ofannefndan uppdrátt hafa jafnframt verið
merktir þeir staðir á sunnanverðu Snæfellsnesi, Mýr-
um og norðanverðum Reykjanesskaga, þar sem fund-
izt hefur skeljasandur, er inniheldur meira en helm-
ing af skel.