Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Blaðsíða 21
DV Fókus
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 21
Söngkonan Ms Dynamite Var
Söngkonan Ms Dynamite var of hrædd til
að sofa nokkuð eftir að hún fór heim af spítal-
anum með nýfæddan son sinn, vegna þess að
mamma hennar missti fjögur börn. Ms
Dynamite tjáði sig nýlega í fyrsta skipti um
gleðina sem fylgir því að eignast barn. „Orð fá
því ekki lýst hvernig mér leið þegar ég sá
Shavaar í fyrsta skipti. Ég var svolítið hrædd í
byrjun en svo ákvað ég að taka mig taki. Ég var
sérstaklega smeyk af því að mamma mín
missti fjögur börn, þau dóu öll þegar þau voru
ungabörn," sagði söngkonan í viðtali um helg-
ina.
Fæðingin stærsta augnablikið í lífinu
„Fyrstu tvo dagana eftir að ég kom heim af
spítalanum með Shavaar gat ég ekkert sofið.
Ég lá bara þarna og horfði á hann. I hvert skipti
sem hann hóstaði fór ég að velta því fyrir mér
hvað væri að honum. Síðan náði ég mér upp
úr þessu og vissi fyrir víst að það myndi verða
allt í lagi með hann.“
Ms Dynamite, sem heitir réttu nafni Niomi
McLean-Daley, komst í heimsfréttirnar fyrir
tveimur árum þegar hún varð fyrsti svarta
konan til að vinna Mercury-verðlaunin fyrir
sólóplötu sína. Þrátt fyrir sigrana á tónlistar-
sviðinu segir hún að fæðing sonarins í júlí á
síðasta ári sé stærsta augnablikið í lífi hennar.
Sonurinn fær að hlusta á bófarapp
„Ég er byrjuð að vinna afur og ég er mjög
þakklát fyrir að starf mitt er
þannig að ég get tekið hann
með mér,“ segir hún og bætir
því við að sonurinn fái að
hlusta á bófarapp þegar hann
verður eldri. „Sonur minn
mun alast upp við ails konar
tónlist, meira að segja rapp
sem fjallar um neikvæða hluti.
Raunin er sú að rappið fjallar
um það sem alvöru fólk uppfif-
ir, hvort sem það er slæmt eða
gott,“ sagði hún að lokum og
bætti við: „Ég elska að vera
mamma. Eftir að ég eignaðist
hann finnst mér eins og ég eigi
allt."
MsDynamite Komin afturá ferðina
eftir fæðingu frumburðarins. Segir fæð-
inguna stærsta augnabiik lifs sins en
óttaðist að missa son sinn fyrstu dagana afþvi að mamma
hennar missti fjögur börn.
hrædd um son sinn af því að
mamma hennar missti fjögur börn
'T'-
Dv.
Nýtt DV sex morgna vikunnar.
Sími 550 5000 Ekkert kynningartilboð.
askrift@dv.is Engin frídreifing.
WWW.VÍSÍr.ÍS Mánaðaráskrift 1.995 krónur.